Fimm látnir og 92 særðir eftir árásir Írana

Reykur yfir borginni Haifa í nótt.
Reykur yfir borginni Haifa í nótt. AFP/Ahmad Gharabli

Fimm manns eru látn­ir og 92 særðir eft­ir flug­skeyta­árás­ir Írans á Ísra­el í nótt, að sögn ísra­elskr­ar hjálp­ar­stofn­un­ar.

Þeir sem lét­ust fund­ust á fjór­um mis­mun­andi stöðum í miðhluta Ísra­els, sagði hjálp­ar­stofn­un­in Magen Dav­id Adom. Á meðal þeirra voru tvær kon­ur og tveir menn um sjö­tugt.

Átök­in á milli Írans og Ísra­els hafa haldið áfram fjórða dag­inn í röð. Árás­ir Írana í nótt voru gerðar eft­ir að Ísra­el­ar hæfðu hernaðarleg skot­mörk í Íran. Ráðamenn beggja þjóða hafa heitið áfram­hald­andi eyðilegg­ingu.

Mynd­efni AFP-frétta­stof­unn­ar sýn­ir ónýt­ar bygg­ing­ar í borg­inni Tel Aviv og eld fyr­ir utan strand­borg­ina Haifa eft­ir að Ísra­els­her hvatti al­menn­ing til að leita skjóls frá vænt­an­leg­um flug­skeyt­um Írana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert