Íranar hefja loftárásir á Ísrael

Reykur stígur upp af einu af mörgum skotmörkum Ísraela í …
Reykur stígur upp af einu af mörgum skotmörkum Ísraela í írönsku höfuðborginni Teheran í dag. Íranar kveðast nú hafa gert gagnárás sem sé nýhafin. AFP

Íran­ar hafa sam­kvæmt þarlend­um miðlum hafið loft­árás­ir að nýju á Ísra­els­menn í vær­ing­um sem hóf­ust með árás­um þeirra síðar­nefndu á föstu­dag­inn í því augnamiði að setja Írön­um stól­inn fyr­ir dyrn­ar í kjarn­orku­mál­um, en Ísra­el­ar telja þessa fornu fjandþjóð sína hyggj­ast út­vega sér kjarna­vopn sem gætu haft ófyr­ir­sjá­an­leg­ar af­leiðing­ar í Ísra­el yrði þeim beitt.

Kveðst ísra­elski flug­her­inn hafa grandað tveim­ur F-14 Tomcat-orr­ustuþotum á flug­velli í ír­önsku höfuðborg­inni Teher­an og legg­ur fram mynd­skeið til jarteikna sem sýn­ir eina slíka í sigti ísra­elskr­ar orr­ustuþotu og skömmu síðar í ljós­um log­um.

Önnur F-14-orrustuþotan sem Ísraelar sprengdu á flugvelli í Teheran í …
Önnur F-14-orr­ustuþotan sem Ísra­el­ar sprengdu á flug­velli í Teher­an í dag. Vopna­sér­fræðing­ur BBC seg­ir þá þotu, og aðra til sem sprengd var, hafa staðið á sama stað frá því í hitteðfyrra og lík­ast til hafa lokið þjón­ustu­ferli sín­um. Mynd­skeið/Í​sra­elski flug­her­inn

Að sögn flug­hers­ins var ír­önsku F-14-þot­un­um ætlað að fljúga til móts við þotur Ísra­ela, það skrif­ar Chris Partridge, vopna­sér­fræðing­ur frétta­stofu breska rík­is­út­varps­ins BBC, en læt­ur þess jafn­framt getið að væng­ir F-14-vél­ar­inn­ar á mynd­skeiðinu séu í öft­ustu stöðu og líti því ekki út fyr­ir að hún hafi verið á leið í áætlað flug­tak. Auk þess hafi þot­urn­ar í mynd­skeiðinu staðið hreyf­ing­ar­laus­ar á sama stað frá því í hitteðfyrra og hafi því lík­ast til lokið ferli sín­um fyr­ir löngu.

Geti skotið að vild

Get­ur Partridge þess einnig að þotu­floti Írana sé kom­inn af létt­asta skeiði og hafi ekki roð við nýj­ustu fram­leiðslu vest­rænna fram­leiðenda á þess­um vett­vangi sem ísra­elski flug­her­inn hef­ur á að skipa. Hafi Ísra­el­ar enda lýst því yfir í dag að þeir hefðu tögl­in og hagld­irn­ar í loft­rým­inu yfir Íran og gætu nýmóðins þotur þeirra skotið að vild með hár­ná­kvæm­um miðun­ar­búnaði á skot­mörk í Íran – eng­in þörf væri á að beita þar lang­dræg­um flug­skeyt­um úr mik­illi fjar­lægð.

F-14-þotan í ljósum logum.
F-14-þotan í ljós­um log­um. Mynd­skeið/Í​sra­elski flug­her­inn

Rík­is­sjón­varps­stöð í Íran vitn­ar í her­inn þar í landi sem kveður stjórn­völd hafa sent íbú­um „her­numdu svæðanna“, það er að segja Ísra­els, þá aðvör­un að hafa sig á brott fýsti þá að halda lífi auk þess sem sjón­varps­stöðin grein­ir frá því að árás­ir Írana muni bein­ast að ísra­elsk­um innviðum.

Þá kem­ur það fram í frétt­um stöðvar­inn­ar að ír­önsk stjórn­völd hafi skipað Ísra­el­um að rýma bygg­ing­ar sjón­varps­stöðva sinna, Chann­el 12 og Chann­el 14, þar sem þeir fái nú að gjalda þess að hafa beint spjót­um sín­um að höfuðstöðvum ír­anska rík­is­sjón­varps­ins.

BBC

AP

Reu­ters

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert