Segir að aftaka æðsta klerksins myndi enda stríðið

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels og Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels og Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans. AFP/Menahem Kahana/Khamenei

Það myndi ekki magna átök­in, held­ur myndi það binda enda á þau,“ sagði Benja­mín Net­anja­hú for­sæt­is­rá­herra Ísra­els um hvað myndi ger­ast ef Ísra­el myndi drepa Ali Khamenei, æðsta klerk Írans.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti setti Net­anja­hú ný­lega stól­inn fyr­ir dyrn­ar en for­sæt­is­ráðherr­ann hafði uppi fyr­ir­ætlan­ir um að ráða æsta klerk Írans af dög­um.

Átök ríkj­anna hafa farið stig­magn­andi und­an­farna daga. Net­anja­hú sagði í dag að stríðið væri á barmi kjarn­orku­styrj­ald­ar. Hann sagði Ísra­el vera að koma í veg fyr­ir það með því að beita sér gegn ill­um öfl­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka