Bolsonaro sakaður um njósnir og tilraun til valdaráns

Jair Bolsonaro var forseti Brasilíu á árunum 2019 til 2022.
Jair Bolsonaro var forseti Brasilíu á árunum 2019 til 2022. AFP/Evaristo Sa

Lög­regl­an í Bras­il­íu boðaði Jair Bol­son­aro í rétt­ar­sal fyr­ir til­raun til vald­aráns í dag. Son­ur Bol­son­aro hef­ur staðfest að einnig eigi að kæra fyrr­ver­andi for­set­ann fyr­ir njósn­ir sem lög­regl­an grun­ar hann um að hafa fyr­ir­skipað á þeim tíma þegar hann var for­seti Bras­il­íu. 

Hann gæti hlotið allt að 40 ára fang­elsi fyr­ir glæp­ina sem hann er sakaður um. 

Lög­regl­an hef­ur gefið út yf­ir­lýs­ingu þess efn­is að Bol­son­aro, sem var for­seti lands­ins frá 2019 til 2022, hafi „stofnað til ólög­legr­ar glæpa­sam­taka sem hafi njósnað með ólög­mæt­um hætti um op­in­bera starfs­menn og vís­vit­andi dreift fals­frétt­um til fólks“.

Tek­ur fyr­ir ásak­an­irn­ar

Hinn hægris­innaði Bol­son­aro tapaði kosn­ing­un­um árið 2022 fyr­ir hinum vinst­ris­innaða Luiz Inacio Lula da Silva. Hann er grunaður um að hafa lagt á ráðin um að halda völd­um þrátt fyr­ir niður­stöður kosn­ing­anna. 

Bol­son­aro hef­ur tekið fyr­ir all­ar slík­ar ásak­an­ir og sagt þær vera póli­tísk­ar of­sókn­ir, upp­logn­ar til að koma í veg fyr­ir end­ur­komu hans í stjórn­mál­in. Verði hann dæmd­ur sek­ur, get­ur hann ekki boðið sig fram í for­seta­kosn­ing­un­um í Bras­il­íu árið 2026. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert