Manndrápstilraun á 12 tonna lyftara

Maður í Fredrikstad sætir nú ákæru fyrir tilraun til manndráps …
Maður í Fredrikstad sætir nú ákæru fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa ekið tólf tonna skotbómulyftara gegn lögreglubifreið í apríl. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Maður nokk­ur á þrítugs­aldri í norska bæn­um Fredrikstad hef­ur verið ákærður fyr­ir mann­dráp­stilraun eft­ir að hann lagði þar – nær í óviti af mungáti og fíkni­efna­neyslu – til at­lögu við lög­regluþjóna kvöld nokk­urt í apríl og ók tæp­lega tólf tonna skot­bóm­u­lyft­ara.

Barst lög­reglu til­kynn­ing að kvöldi dags 12. apríl um að vinnu­vél­inni væri ekið gá­leys­is­lega um göt­ur Fredrikstad og héldu lög­reglu­bif­reiðar á vett­vang til að kanna málið. Hafði maður­inn þá ekið lyft­ar­an­um, er hann tók trausta­taki við Gude­berg-skól­ann, gegn­um girðingu og hélt för sinni áfram yfir Fredrikstad-brúna er ligg­ur yfir ána Glommu.

Var lyft­ar­inn á fram­kvæmda­svæði við skól­ann og í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Sør­by Ut­leie AS.

Brást ókvæða við

Er maður­inn sá tvær lög­reglu­bif­reiðar aka sér í mót brást hann ókvæða við, sveigði þungri vinnu­vél­inni yfir á öf­uga ak­rein og voru lög­reglu­menn sam­mála um að hann hefði reynt að aka á aðra bif­reiðina er þeim tókst naum­lega að víkja und­an árekstri. Þetta sagði ákæru­valds­full­trúi lög­reglu, Tore Al­menn­ing, í viðtali við norska rík­is­út­varpið NRK síðar þá um kvöldið.

Var akst­ur manns­ins svo viðsjár­verður að minnstu munaði að hann velti lyft­ar­an­um er hann ók hon­um á fleygi­ferð gegn­um hring­torg í bæn­um.

Var för hans stöðvuð skammt frá braut­ar­stöðinni og hann færður á lög­reglu­stöð þar sem hon­um var til­kynnt að hann lægi und­ir grun fyr­ir til­raun til mann­dráps.

Sneru grun­semd­um sín­um í tvígang

Eft­ir að maður­inn hafði sætt yf­ir­heyrslu lög­reglu varð niðurstaðan sú að grun­ur­inn í garð hans væri um þjófnað, gá­leys­is­leg­an akst­ur, að hafa stöðvun­ar­merki lög­reglu að engu, skemmd­ar­verk og akst­ur und­ir áhrif­um.

Er að ákæru í mál­inu kom töldu héraðssak­sókn­ar­ar í Ósló ástæðu til að leggja upp­haf­leg­an grun lög­reglu til grund­vall­ar og ákærðu fyr­ir til­raun til mann­dráps.

Hér hefur maðurinn nýverið ekið gegnum girðingu og stefnir hraðbyri …
Hér hef­ur maður­inn ný­verið ekið gegn­um girðingu og stefn­ir hraðbyri út á vegi Fredrikstad á lyft­ar­an­um er hann tók trausta­taki. Mynd­skeið/​Veg­far­andi

Hef­ur verj­andi manns­ins, Jostein Løken, sett sig mjög upp á móti þeirri ákvörðun ákæru­valds­ins og kveður ekki til­efni til að ákæra fyr­ir til­raun til mann­dráps. „Hann kveðst alls ekki hafa hugsað sér að drepa nokk­urn mann,“ seg­ir verj­and­inn við NRK og er nokk­ur urg­ur í hon­um. „Það var víðsfjarri því er hann hugsaði sér,“ full­yrðir hann enn frem­ur.

Auk til­raun­ar til mann­dráps er lyft­araþjóf­ur­inn ákærður fyr­ir að hafa beitt tæki með mikla hættu­eig­in­leika gegn lög­reglu­manni við skyldu­störf auk þess að brjóta gegn nokkr­um ákvæðum um­ferðarlaga, en með akstri sín­um vann hann tjón á nokkr­um bif­reiðum auk þess að brjóta rúðu í skól­an­um.

Verður málið þing­fest fyr­ir héraðsdómi 15. októ­ber.

NRK

NRK-II (rætt við ákæru­valds­full­trúa sama kvöld)

VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert