Stóð í vegi fyrir „afdráttarlausri“ stuðningsyfirlýsingu

Frá G7-fundinum í Kanada.
Frá G7-fundinum í Kanada. AFP/Teresa Suarez

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti var ekki reiðubú­inn að leggja bless­un sína yfir af­drátt­ar­lausa yf­ir­lýs­ingu um stuðning G7-ríkj­anna við Úkraínu og til for­dæm­ing­ar Rúss­lands í dag. 

Talsmaður kanadískra stjórn­valda, sem eru gest­gjaf­ar G7-fund­ar­ins, seg­ir Banda­ríkja­menn hafa viljað stíga var­leg­ar til jarðar og því ekki verið reiðubún­ir að samþykkja yf­ir­lýs­ing­una.

Seg­ir hann Banda­rík­in hafa viljað halda mögu­leik­an­um opn­um á því að geta miðlað sátt­um á milli ríkj­anna tveggja. 

Öll hin sex rík­in, Kan­ada, Jap­an, Þýska­land, Ítal­ía, Bret­land og Frakk­land, eru sögð hafa viljað gefa út yf­ir­lýs­ing­una. 

„Það kom í raun og veru eng­in yf­ir­lýs­ing af því að Banda­rík­in vildu þynna hana út,“ seg­ir talsmaður­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert