Tveir bæjarstjórar myrtir á tveimur dögum

Þjóðvarðliður í bænum Tacambaro í Mexíkó, þar sem enn annars …
Þjóðvarðliður í bænum Tacambaro í Mexíkó, þar sem enn annars bæjarstórinn var myrtur 6. júní. AFP/Enrique Castro

Martha Laura Mendoza, bæj­ar­stjóri í Tepalca­tepec í mexí­kóska rík­inu Michoacan, var ráðin af dög­um í dag.

Er þetta ann­ar dag­ur­inn í röð þar sem bæj­ar­stjóri er myrt­ur í Mexí­kó.

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri þar, Guillermo Valenia, sagðist hafa heim­ild­ir fyr­ir því að ráðist hefði verið á Mendoza og eig­in­mann henn­ar þegar þau voru að yf­ir­gefa heim­ili sitt í dag.

Bæn­um hef­ur verið haldið í helj­ar­greip­um glæpa­gengja í nærri því tvo ára­tugi. 

Ann­ar bæj­ar­stjóri drep­inn í gær

Í gær rudd­ust fjór­ir vopnaðir menn inn á skrif­stofu bæj­ar­stjóra í bæn­um San Mateo Pin­as í rík­inu Oaxaxa.

Menn­irn­ir skutu og myrtu bæj­ar­stjór­ann, Li­lia Garcia, og starfs­mann á vett­vangi. 

Tug­ir emb­ætt­is­manna hafa hlotið sömu ör­lög á und­an­förn­um árum í Mexí­kó, þar sem valda­mik­il glæpa­gengi svíf­ast einskis til að fá sínu fram­gengt.

Of­beldið hef­ur verið áber­andi í minni bæj­um lands­ins en hef­ur einnig breiðst til höfuðborg­ar­inn­ar, Mexí­kó­borg­ar, þar sem tveir nán­ir sam­starfs­menn borg­ar­stjór­ans voru myrt­ir fyr­ir um það bil mánuði síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka