Meira en 50 orrustuþotum beitt í árásum Ísraela

Reyk leggur frá Teheran, höfuðborg Írans.
Reyk leggur frá Teheran, höfuðborg Írans. AFP

Tals­menn Ísra­els­hers seg­ir her­inn hafa gert árás á ír­anska skil­vindu­fram­leiðslu­stöð og marg­ar vopna­fram­leiðslu­stöðvar í nótt.

Meira en 50 orr­ustuþotur ísra­elska flug­hers­ins hafi gert fjölda loft­árása á Teher­an í nótt að því er fram kem­ur í yf­ir­lýs­ingu frá hern­um. Árás­irn­ar eru hluti af víðtækri viðleitni til að trufla kjarn­orku­vopnaþró­un­ar­áætl­un Írans sem var að fram­leiða skil­vindu í Teher­an.

Ráðist var á nokkr­ar vopna­fram­leiðslu­stöðvar, þar á meðal aðstöðu til að fram­leiða íhluti í flug­skeyti til notk­un­ar á landi niðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert