Geimflaug SpaceX sprakk í Texas

Atvikið átti sér stað í Starbase, höfuðstöðvum SpaceX í Texas …
Atvikið átti sér stað í Starbase, höfuðstöðvum SpaceX í Texas nálægt landamærum Mexíkó. AFP/Michael Gonzalez

Svo­kallað stjörnu­skip (Stars­hip) úr smiðju SpaceX, fyr­ir­tæk­is Elons Musk, sprakk á skot­palli í Texas í Banda­ríkj­un­um í gær. Eng­an sakaði.

Musk hef­ur sagst vilja flytja fólk til Mars í geimþotum sín­um en viðbúið er að at­vik sem þessi setji strik í reikn­ing auðjöf­urs­ins hvað það varðar. 

At­vikið átti sér stað við reglu­bundið eft­ir­lit í Texas seint á miðviku­dags­kvöld. Geimskutl­an er sú stærsta í heim­in­um, heil­ir 123 metr­ar á hæð. Slík skutla hef­ur áður sprungið eft­ir flug­tak. 

Reykur í lofti eftir að geimskutla SpaceX sprakk í Texas.
Reyk­ur í lofti eft­ir að geimskutla SpaceX sprakk í Texas. AFP/​AFP/​Michael Gonza­lez
Starship SpaceX er stærsta og öflugasta geimskutlan sem til er.
Stars­hip SpaceX er stærsta og öfl­ug­asta geimskutl­an sem til er. AFP/​Chand­an Khanna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert