Átta látnir eftir að loftbelgur féll til jarðar

21 manns var um borð í loftbelgnum. Mynd úr safni.
21 manns var um borð í loftbelgnum. Mynd úr safni. AFP

Að minnsta kosti átta manns létu lífið í suður­hluta Bras­il­íu í dag þegar það kviknaði í loft­belg og hann féll til jarðar.

21 var um borð í loft­belgn­um og því 13 manns sem eru tald­ir hafa lifað slysið af. Rann­sókn er haf­in á or­sök­um slyss­ins. Er þetta í annað sinn sem ein­stak­ling­ar láta lífið í loft­belg í Bras­il­íu. 

Á sam­fé­lags­miðlum hafa mynd­bönd af at­vik­inu farið í dreif­ingu en þar má sjá körf­una sem bar farþeg­ana falla tugi metra til jarðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert