Útsendum starfsmönnum fækkaði um 20%

Starfsmönnum utanríkisráðuneytisins hefur fækkað á síðustu árum.
Starfsmönnum utanríkisráðuneytisins hefur fækkað á síðustu árum. mbl.is/Hjörtur

Frá ár­inu 2008 hef­ur út­send­um starfs­mönn­um ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins fækkað um 20%. Fækk­un­in er 25% ef miðað er við árið 2006. Heild­ar­fjöldi starfs­manna ráðuneyt­is­ins var 240 1. októ­ber 2008, en þeir voru 213 1. októ­ber sl. Fækk­un­in er 11,2%.

Með staðarráðnum starfs­mönn­um er átt við sendi­herra, sendi­full­trúa og aðra starfs­menn sem send­ir eru til starfa er­lend­is frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu. Þeir voru 67 árið 2008 en eru 54 í dag. Við sendi­ráðin starfa einnig starfs­menn sem búa á staðnum. Þeir voru 74 árið 2008, en eru 67 í dag.

Í dag starfa 89 starfs­menn á aðalskrif­stofu ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, en þeir voru 94 árið 2008.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu var gerð krafa um 7% sparnað hjá ráðuneyt­inu árið 2009, en sparnaður­inn hefði numið 26,4%. Árið eft­ir hefði verið gerð krafa um 10% sparnað, en niðurstaðan hefði orðið 16,4% sparnaður. Árið 2011 hefði sparnaður­inn numið 9,2% og 3,6% í fyrra. Í ár er gerð krafa um 1,7% sparnað hjá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu og 1,5% á næsta ári.

Meta þörf á starfs­mönn­um heima og er­lend­is

Hagræðing­ar­hóp­ur rík­is­stjórn­ar­inn­ar legg­ur til sparnað í ut­an­rík­isþjón­ust­unni. Sunna Gunn­ars Marteins­dótt­ir, aðstoðarmaður ut­an­rík­is­ráðherra, seg­ir að stjórn­end­ur ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins séu ánægðir með til­lög­ur hagræðing­ar­hóps­ins. Sum­ar þeirra séu að kom­ast til fram­kvæmda í ráðuneyt­inu nú þegar.

Meðal til­lagna hóps­ins er að ut­an­rík­is­ráðherra sé falið að láti meta út­gjaldaþörf í ljósi breyttra áherslna. Sér­stak­lega á að meta þörf á fjölda stöðugilda inn­an­lands og er­lend­is með það að mark­miði að fækka stöðugild­um og ná fram sparnaði.

Sunna seg­ir að vinn­an við að meta þetta sé þegar haf­in inn­an ráðuneyt­is­ins. Unnið sé að end­ur­skoðun skipu­lags og starf­semi ráðuneyt­is­ins og hafi ut­anaðkom­andi sér­fræðing­ur verið feng­inn til aðstoðar. „Horft er til breyttra áherslna m.a. í fram­haldi af því að gert var hlé á aðild­ar­viðræðum. Vinna við þessa til­lögu er haf­in og er áætlað að þessu ljúki fyr­ir árs­lok 2013.“

Hagræðing­ar­hóp­ur­inn legg­ur einnig til að um­fang og starf­semi Þýðing­armiðstöðvar ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins verði end­ur­met­in. Sunna seg­ir að í lok þessa árs mun starfs­mönn­um þýðing­armiðstöðvar­inn­ar hafa fækkað um nærri 20 frá því í sept­em­ber. Áfram verði skoðað hvernig best verður staðið að rekstri þýðing­armiðstöðvar­inn­ar m.a. vegna EES-samn­ings­ins.

Sunna seg­ir að ekki sé gert ráð fyr­ir því í fjár­lög­um að hlut­fall til þró­un­araðstoðar hækki í sam­ræmi við fyrri samþykkt alþing­is, held­ur standi í stað. „Þannig hægj­um við á hækk­un hlut­falls til þró­un­araðstoðar, þó áfram sé stefnt að því að Ísland fari í 0,7%.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert