Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar dylst engum

Árni Stefán Jónsson, formaður SFR.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR. Af vef SFR

„Við fyrstu sýn má segja að það sé fátt nýtt í hagræðing­ar­til­lög­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þær hafa þó valdið nokkr­um titr­ingi meðal starfs­manna rík­is­ins,“ seg­ir Árni Stefán Jóns­son formaður SFR stétt­ar­fé­lags, „enda lít­ur út fyr­ir að rík­is­starfs­menn eigi hugs­an­lega að borga gjaf­mildi rík­is­stjórn­ar­inn­ar til handa auðmönn­um, með at­vinnu­ör­yggi sínu.

 Í vik­unni birti hagræðing­ar­hóp­ur rík­is­stjórn­ar­inn­ar loks til­lög­ur sín­ar. Eðli máls­ins sam­kvæmt snert­ir efni þeirra op­in­bera starfs­menn tals­vert og lík­legt má telja að þær muni hafa áhrif inn í nýhafn­ar kjara­samn­ingsviðræður SFR og rík­is­ins.  

„Vand­ræðagang­ur rík­is­stjórn­ar­inn­ar dylst held­ur eng­um,“ er haft eft­ir Árna Stefáni á vef SFR. „Sér­stak­ur hagræðing­ar­hóp­ur birt­ir til­lög­ur sem er svona sam­an­soðinn óskalisti, aðeins ör­fá­um mánuðum eft­ir að rík­is­stjórn­in af­salaði sér margra millj­arða tekj­um með aðgerðum sín­um í sum­ar. Við rík­is­starfs­menn get­um ekki annað en haft það í huga við skoðun þess­ara til­lagna.“ 

Að mati Árna má í til­lög­un­um helst finna upp­taln­ingu á hinum ýms­um atriðum sem á eft­ir að skil­greina frek­ar. Hvort til­lög­urn­ar séu fram­kvæm­an­leg­ar eða hvort mark­miðum um betri þjón­ustu og sparnað sé náð með þeim seg­ir hann að eigi síðan al­veg eft­ir að koma í ljós.

„Ávinn­ing­ur­inn af öllu þessu er harla óljós. Það sem vek­ur helst at­hygli er að í til­lög­un­um er orðið „sam­ein­ing“ nefnt tæp­lega 40 sinn­um án þess að því fylgi ná­kvæm út­list­un. Það er kannski gott og vel enda er sam­ein­ing stofn­ana flókið verk­efni sem þarf góðan tíma til að fram­kvæma ef vel á að vera. Það vek­ur hins veg­ar efa­semd­ir um hvort all­ar þess­ar sam­ein­ing­ar muni verða til góðs, enda segja þeir sem til þekkja að sam­ein­ing stórra rekstr­arein­inga kalli á mik­inn á kostnað fyrstu 3-5 árin. Sam­ein­ing­ar eru kostnaðar­söm fram­kvæmd í upp­hafi og ekki er tryggt að þær skili sparnaði til lengri tíma, seg­ir Árni.

„Einnig er rétt að vekja at­hygli á því að þrátt fyr­ir að all­ar til­lög­ur hagræðing­ar­hóps­ins myndu nú spara millj­arða þá er sparnaður­inn lít­ill ef þær verða til þess að henda fólki út í at­vinnu­leysi. Við hjá SFR stétt­ar­fé­lagi leggj­um þó of­urá­herslu á að í vinnu við all­ar fyr­ir­hugaðar sam­ein­ing­ar verði sú hug­mynda­fræði sem unnið var eft­ir við sam­ein­ingu skatt­stof­anna og stofn­un Sam­göngu­stofu höfð að leiðarljósi. Þar var starfs­fólki ekki sagt upp, held­ur áttu breyt­ing­arn­ar sér stað með eðli­leg­um hætti.“

Í til­lög­un­um er lögð áhersla á að vinnu við jöfn­un kjara og rétt­inda á op­in­ber­um og al­menn­um vinnu­markaði verðið hraðað og end­ur­skoðun laga á sviði starfs­manna­mála fari fram. „Hér er verið að setja grund­vall­ar­breyt­ing­ar á starfs­um­hverfi rík­is­starfa­manna í sak­laust gervi og rétt er að hafa all­an var­ann á. Þar er þó sér­stak­lega tekið fram að sú vinna verði í sam­ráði við stétt­ar­fé­lög og túlk­um við það þannig að um slík­ar breyt­ing­ar verði samið, og ekk­ert verði gert án samþykk­is stétt­ar­fé­lag­anna. Fyr­ir þessu höf­um við þegar vil­yrði enda hef­ur þetta mál komið upp áður í umræðum á milli rík­is og stétt­ar­fé­laga á und­an­förn­um árum,“ seg­ir Árni.

Þá sagði hann það einnig vekja ugg að í til­lög­um megi sjá harðari af­stöðu gagn­vart rétt­ind­um fólks til bóta­greiðsla og þjón­ustu á erfiðari tím­um. Þar sé m.a. lagt til að hætt verði við leng­ingu fæðing­ar­or­lofs og í mála­flokki at­vinnu­leit­enda er lögð of­uráhersla að stytta þann tíma sem fólk hef­ur bæt­ur á sama tíma og rík­is­stjórn­in boðar niður­skurð á öll­um vinnu­markaðsúr­ræðum. „Þetta eru ekki áhersl­ur sem við vilj­um sjá,“ seg­ir Árni, „og eru langt frá öll­um hug­mynd­um stétt­ar­fé­lag­anna um nor­rænt vel­ferðar­kerfi. En það er þó betra að þetta kem­ur fram í nú upp­hafi alls­herj­ar­kjara­samn­inga á vinnu­markaði. Þessi atriði munu koma þar til skoðunar og við mun­um standa gegn öll­um rétt­inda­skerðing­um og lim­lest­ing­um á vel­ferðar­kerfi lands­manna,“ seg­ir Árni í frétt á vef SFR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert