Mikil röskun á starfseminni

Landspítali háskólasjúkrahús Í Fossvogi
Landspítali háskólasjúkrahús Í Fossvogi mbl.is/Ómar Óskarsson

Mikil röskun verður á starfsemi Landspítalans í vikunni vegna verkfalla en á miðnætti hefjast verkfallsaðgerðir Læknafélags Íslands og að morgni 4. nóvember hefst verkfall Skurðlæknafélags Íslands.

Í síðustu viku þurfti að fresta um 500 dag- og göngudeildarkomum, 56 skurðaðgerðum sem og tugum rannsókna og meðferða, m.a. hjartaþræðingum og speglunum á Landspítalanum. 

„Það er ljóst að framundan er mikil vinna við að vinda ofan af áhrifum þessa og liggur fyrir að vinnu- og biðlistar munu lengjast. Dragist verkfallið á langinn og jafnvel út boðaðan tíma (11. desember) má ætla að um 800 skurðaðgerðum verði frestað, hundruðum rannsókna og enn fleiri dag- og göngudeildakomum,“ sagði í föstudagspistli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans.

Almennt gildir að bráðatilvikum er sinnt venju samkvæmt á Landspítala alla verkfallsdaga en gera má ráð fyrir áhrifum á alla aðra starfsemi.

Verkfallsaðgerðir ná þessa daga til flæðissviðs 3. og 4. nóvember (bráðamóttaka, endurhæfingadeildir, öldrunardeildir o.fl.), aðgerðasviðs 3.-6. nóvember (gjörgæsla, skurðstofur, speglanir, svæfing, blóðbanki o.fl.) og geðsviðs 4. og 5. nóvember.

Áhrif á flæðissviði (3. og 4. nóvember) eru þessi helst:

  • Bráðatilvikum verður sinnt en biðtími á bráðamóttöku fyrir þá sem hafa minni háttar áverka eða veikindi gæti lengst.
  • Bókaðar endurkomur á bráða- og göngudeild falla niður. 
  • 5 daga deild á Landakoti verður lokuð.
  • Klínísk kennsla fellur niður.
  • Starfsemi á Grensási mun að mestu haldast óbreytt.

Áhrif á aðgerðasviði og skurðlækningasviði (3., 4. og 5. nóvember) eru þessi helst:

  • Starfsemi bráðalegudeilda verður eins og um helgar. Öllum bráðatilvikum verður  sinnt eins og venjulega þessa verkfallsdaga.
  • Starfsemi á skurðstofum og svæfingadeildum miðast við bráðastarfsemi.
  • Göngudeildir skurðlækna verða lokaðar dagana 4.-6. nóvember. Undir þær heyra göngudeild almennra skurðlækna (10E), göngudeild þvagfæralækninga (11A), göngudeild bæklunarlækninga (G3), göngudeild háls-, nef- og eyrnalækninga HNE (B3), göngudeild lýtalækninga (B3), göngudeild æðaskurðlækninga og göngudeild heila- og taugaskurðlækninga (B3). Göngudeildarkomur til annarra en lækna haldast óbreyttar.
  • Göngudeild augnlækninga (Ei 37) verður lokuð dagana 5. og 6. nóvember.
  • Ekki verður hægt að undirbúa sjúklinga fyrir aðgerð á innskriftarmiðstöð (10E og B3) verkfallsdagana. Símainnskrift svæfingahjúkrunarfræðinga verður í eðlilegum farvegi.
  • Blóðbanki mun afgreiða allar bráðabeiðnir um blóð og blóðhluta 3. og 4. nóvember.
  • Valrannsóknir sem þarfnast svæfingar dagana 3. og 4. nóvember  falla niður. 
  • Aðgerðir tannlækna á þriðjudag falla niður vegna verkfalls svæfingalækna.

Áhrif á geðsviði (4. og 5. nóvember) eru þessi helst:

  • Bókaðir tímar hjá læknum á göngudeildum geðdeilda falla niður (göngudeild fíknigeðdeildar, almenn göngudeild við Hringbraut og göngudeild á Kleppi).
  • Bráðatilvikum verður sinnt að vanda.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert