Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða einkaskilaboðum á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Uppfært 17. desember kl. 10:16
Maðurinn er kominn í leitirnar