Áfram gæsluvarðhald vegna misþyrmingar

Maðurinn mun áfram þurfa að sæta gæsluvarðhaldi þar sem hann …
Maðurinn mun áfram þurfa að sæta gæsluvarðhaldi þar sem hann er talinn liggja undir sterkum grun um að hafa framið brot sem getur varðað meira en 10 ára fangelsi. Rax / Ragnar Axelsson

Karlmaður, sem ákærður hefur verið fyrir frels­is­svipt­ingu, lík­ams­árás, hót­an­ir, kyn­ferðis­brot og stór­felld­ar ærumeiðing­ar gegn sam­býl­is­konu sinni, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, en áður hafði gæsluvarðhald tvívegis verið framlengt yfir manninum. Þetta staðfesti Hæstiréttur í dag með dómi sínum. Maðurinn hefur nú setið í gæsluvarðhaldi frá 7. febrúar.

Maðurinn var ákærður í málinu 29. mars og fór aðalmeðferð í málinu fram 12. maí og er nú beðið dóms. Segir í úrskurði héraðsdóms um gæsluvarðhaldið að maðurinn liggi undir sterkum grun um að hafa framið brot sem varðar meira en 10 ára fangelsi. Í því ljósi er fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum og staðfestir Hæstiréttur þá niðurstöðu.

Frétt mbl.is: Grunaður um al­var­leg brot gegn sam­býl­is­konu sinni

Maður­inn er ákærður fyr­ir að hafa föstu­dag­inn 5. fe­brú­ar svipt sam­býl­is­konu sína frelsi í fjór­ar klukku­stund­ir á heim­ili þeirra og ít­rekað veist að henni, slegið hana hnefa­högg­um og rifið í hár henn­ar. Þá hafi hann skiptað kon­unni að setj­ast á stól en svo sparkað hon­um und­an henni svo hún féll á gólfið.

Meðan á þessu stóð er maður­inn sagður hafa hótað kon­unni ít­rekað líf­láti og meinað út­göngu af heim­il­inu.

Þá á maður­inn að hafa tekið mynd­ir af kyn­fær­um henn­ar og áreitt hana kyn­ferðis­lega auk þess sem hann þvingaði hana til munn­maka og endaþarms­maka. Hlaut kon­an af þessu mar á höfði og víðar auk þess sem jaxl brotnaði.

Þá kom fram við rann­sókn máls­ins að maður­inn og faðir hans reyndu ít­rekað að hafa áhrif á framb­urð kon­unn­ar með því að setja sig í sam­band við hana.

Sak­sókn­ari fór fram á áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir mann­in­um vegna al­manna­hags­muna og al­var­leika máls­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert