Vélhjólaklúbburinn Devils Choice, sem áður hét Hog Riders, hefur tekið upp nýtt nafn á Íslandi og heitir nú Bad Breed. Klúbburinn, sem er enn með aðsetur í Skeiðarási í Garðabæ, er með tengsl við samtökin Bandidos sem hafa margsinnis komist í kast við lögin vegna skipulagðrar brotastarfsemi.
Stundin greindi frá því í dag að merki Bad Breed væri nú að finna á húsnæðinu, en Bad Breed-samtökin eiga rætur að rekja til Svíþjóðar og eru nýleg.
Runólfur Þórhallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknardeild skipulagðrar brotastarfsemi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is, að lögreglan fylgist almennt með vélhjólaklúbbum á Íslandi sem eru með tengsl við erlend samtök á borð við Vítisengla og Bandidos.
„Almennt séð þá erum við að fylgjast með ákveðnum mótorhjólaklúbbum; það eru ekkert allir mótorhjólaklúbbar undir þetta settir,“ tekur Runólfur fram. Þetta séu nokkrir fámennir hópar, en einnig eru til stuðnings- og undirklúbbar, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með í samstarfi við ríkislögreglustjóra og lögregluna á Suðurnesjum.
Árið 2011 samþykkti þáverandi ríkisstjórn að veita tæpum 50 milljónum króna til tólf mánaða átaks lögreglunnar til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi. Þá hafði lögreglan vísbendingar um að alvarleg skipulögð glæpastarfsemi væri að færast í vöxt hérlendis og að alþjóðlegir glæpahringir væru að skjóta hér rótum. Aðspurður segir Runólfur að það átak hafi gefið góða raun.