Fiskútflytjendur áberandi í gögnunum

AFP

Ýmis dæmi eru um að fyr­ir­tæki tengd sjáv­ar­út­vegi eða ein­stak­ling­ar tengd­ir þeim hafi nýtt sér fé­lög á af­l­ands­eyj­um. Áber­andi í þeim hópi eru ein­stak­ling­ar tengd­ir fyr­ir­tækj­um í fiskút­flutn­ingi. Þetta kem­ur fram í Frétta­tím­an­um í dag en um­fjöll­un­in er unn­in í sam­starfi við fyr­ir­tækið Reykja­vík Media ehf. og byggð á upp­lýs­ing­um úr svo­nefnd­um Panama-skjöl­um.

Fram kem­ur í frétt­inni að í gögn­un­um, sem koma frá pana­mísku lög­fræðistof­unni Mossack Fon­seca, sé meðal ann­ars að finna út­gerðar­menn, fiskút­flytj­end­ur, skipa­sala og einn fisksala á Íslandi. Þar seg­ir enn frem­ur að gögn­in sýni að notk­un á af­l­ands­fé­lög­um í röðum þess­ara aðila hafi ekki hætt í banka­hrun­inu þar sem mörg gagn­anna séu frá ár­un­um 2010-2014.

Meðal ann­ars er fjallað um af­l­ands­fé­lög­in Nor­ys Capital Ltd., Becot Hold­ing S.A og Elite Sea­foods Panama Corp í eigu Ell­erts Vig­fús­son­ar fiskút­flytj­anda. Hann sé hvað um­svifa­mest­ur af ís­lensk­um aðilum tengd­um sjáv­ar­út­vegi í skjöl­un­um. Eitt af fé­lög­um Ell­erts, Nor­ys Capital, hafi fengið lánaðar 850 millj­ón­ir króna frá Lands­bank­an­um í Lúx­em­borg árið 2002.

Viðskipti tengd af­l­ands­fé­lag­inu Freez­ing Po­int Corp séu einnig áber­andi í gögn­un­um en fé­lagið er í eigu Sig­urðar Gísla Björns­son­ar, fram­kvæmda­stjóra fiskút­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæ­marks, sam­kvæmt frétt­inni. Ekki náðist í Sig­urð vegna máls­ins en Ell­ert sagðist ekki telja ástæðu til þess að ræða um fé­lög­in í hans eigu við blaðamann Frétta­tím­ans.

Fé­lagið ekki notað í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins

Fé­lagið World Wide Sea­food Tra­ding and Consulting Lim­ited var stofnað á Bresku jóm­frúareyj­um árið 2001 af hjón­un­um Lauf­ey Sig­urþórs­dótt­ur og Björg­vin Kjart­ans­syni sem reka fyr­ir­tækið Hamra­fell í Hafnar­f­irði. Haft er eft­ir Lauf­eyju að fé­lagið hafi ekki tengst rekstri Hamra­fells og eng­in slík fé­lög hafi verið notuð í tengsl­um við fyr­ir­tækið.

Lauf­ey seg­ir enn frem­ur að fé­lagið hafi verið stofnað sam­kvæmt ráðlegg­ing­um frá Lands­banka Íslands í Lúx­emburg. Ekk­ert skatta­legt hagræði hafi verið af því að eiga fé­lagið fyr­ir þau hjón­in þar sem eng­inn auðlegðarskatt­ur hafi verið á Íslandi á þess­um tíma. Fé­lagið hafi verið notað fyr­ir fé í þeirra eigu sem flutt hafi verið í fé­lög­in en síðan hafi tap­ast í banka­hrun­inu.

Einnig er fjallað um af­l­ands­fé­lagið Hus­kon In­ternati­onal í eigu Theó­dórs Guðbergs­son­ar, fisk­verk­anda og kaup­sýslu­manns í Garði. Fé­lagið hafi verið stofnað árið 2006 í Panama. Haft er eft­ir Theo­dór að fé­lagið hafi verið notað til þess að selja skip sem keypt hafi verið í Rússlandi. Lands­banki Íslands hafi ráðlagt notk­un slíks fé­lags í þess­um viðskipt­um.

Theo­dór hafi sagt Hus­kon In­ternati­onal hafa haft ís­lenska kenni­tölu og greitt skatta hér á landi. Fé­lagið Arctic Circle In­vest kem­ur einnig við sögu í gögn­un­um en það teng­ist hon­um einnig. Það fé­lag teng­ist einnig fiskút­flutn­ings­fyr­ir­tæk­inu God­thaab á Nöf í Vest­manna­eyj­um og Árna Stefáni Björns­syni sem rekið hef­ur smá­báta­út­gerðina Rakka­nes.

Enn frem­ur er fjallað um af­l­ands­fé­lög sem tengst hafi ein­stak­ling­um sem rekið hafi Sjó­la­skip í Hafnar­f­irði um ára­bil. Einnig fé­lagið Aragon Partners Inc. sem sagt er tengj­ast út­gerðar­mann­in­um Jakobi Val­geiri Flosa­syni á Bol­ung­ar­vík. Haft er hins veg­ar eft­ir hon­um að hann kann­ist ekki við fé­lagið. Ekki sé hægt að full­yrða að það sé ekki rétt.

„Ég kann ekk­ert í fjár­fest­ing­um

Fé­lagið Horn­blow Cont­in­ental Corp. er einnig í gögn­un­um sem sagt er í eigu Kristjáns Vil­helms­son­ar, út­gerðar­manns í Sam­herja. Nafn Þor­steins Vil­helms­son­ar, bróður hans, sé þar einnig vegna fé­lags­ins Cliffs In­vest­ments. Þá hafi Gunn­laug­ur Sæv­ar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­formaður Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyj­um, tengst tveim­ur fé­lög­um.

Útgerðarmaður­inn Örn Erl­ings­son er einnig í Pana­maskjöl­un­um sam­kvæmt um­fjöll­un Frétta­tím­ans en hann rak út­gerðina Sól­bakka ehf. Einn fisksali er í gögn­un­um seg­ir í frétt­inni. Kristján Berg Ásgeirs­son sem rek­ur Fiskikóng­inn í dag. Hann seg­ir í sam­tali við blaðið að hann hafi selt fisk­búð og flutt til Dan­merk­ur þar sem skatt­ar væru háir.

Lands­banki Íslands í Lúx­em­borg hafi ráðlagt hon­um að stofna af­l­ands­fé­lagið Sol­berg Group Ltd. Ráðlegg­ing­ar á Seychell­es-eyj­um árið 2006. Hann hafi greitt skatta af söl­unni á Íslandi en ekki viljað fara með pen­ing­ana til Dan­merk­ur. Pen­ing­arn­ir, um 200 millj­ón­ir króna, hafi hins veg­ar tap­ast í banka­hrun­inu. Hann sé löngu hætt­ur að nota fé­lagið.

„Ég kann ekk­ert í fjár­fest­ing­um; ég er bara fisksali og hef alltaf bara verið það. Ég treysti öðrum mönn­um til að gefa mér ráðlegg­ing­ar um þetta. Ég vissi ekki bet­ur á þess­um tíma en að þetta væri í lagi. Ég var þrjá­tíu og tveggja ára og hélt ég gæti bara hætt að vinna og lifað á þess­um pen­ing­um. Það er leiðin­leg­asta starf sem ég hef verið í,“ er haft eft­ir hon­um.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert