Fyrir viku síðan úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að fenginn yrði nýr matsmaður til að leggja mat á hvar Birnu Brjánsdóttur var komið fyrir í sjó. Í haust var Thomas Møller Olsen fundinn sekur um að hafa myrt Birnu, en deilt er um hvar Birnu var komið fyrir og hvort mögulegt er að Thomas hafi getað gert það.
Ríkissaksóknari kærði úrskurð héraðsdóms en Hæstiréttur vísaði kærunni í gær frá dómi. Það þýðir að fá þarf nýjan matsmann.
Lögmaður Thomasar, Páll Rúnar M. Kristjánsson, sagði fyrir dómi að á milli klukkan sjö og ellefu, morguninn eftir að Birna hvarf, hefði hann, samkvæmt rannsókn lögreglu og dómi héraðsdóms ekið um 140 kílómetra. Páll Rúnar sagði fyrir dómi í dag að ef það yrði niðurstaða sérfræðings að Birnu hefði verið komið fyrir í sjó utan þeirrar vegalengdar sem Thomas á að hafa getað ekið miðað við rannsókn málsins, „þá útiloki það sekt sóknaraðila“.
Við munnlegan málflutning málsins 20. nóvember sagði Páll að staðir þar sem gott aðgengi væri að sjó, austan megin við Selvogsvita (þar sem hún fannst), væru mjög fáir. Hann sagði enn fremur að þeir væru engir vestan Selvogsvita, nema alveg við Grindavík.
Úrskurður héraðsdóms og dómur Hæstaréttar