Fiskútflytjandi grunaður um stórfelld svik

Skattsvikin eru talin hlaupa á hundruðum milljóna.
Skattsvikin eru talin hlaupa á hundruðum milljóna. mbl.is/Golli

Hús­leit var gerð á heim­ili Sig­urðar Gísla Björns­son­ar, fram­kvæmda­stjóra fiskút­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæ­marks, skömmu fyr­ir ára­mót en Sig­urður er grunaður um stór­felld skattaund­an­skot sem tal­in eru hlaupa á hundruðum millj­óna króna. Þetta kem­ur fram á forsíðu Frétta­blaðsins í dag.

Eign­ir hans voru á sama tíma kyrr­sett­ar og banka­reikn­ing­ar hald­lagðir. Þetta herma heim­ild­ir Frétta­blaðsins.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hef­ur haft mál Sig­urðar til meðferðar frá því Panama-skjöl­in voru birt, en fjallað er um mál Sig­urðar í frétt frá Reykja­vík Media haustið 2016 sem var birt í Frétta­tím­an­um í októ­ber 2016.

Viðskipti tengd af­l­ands­fé­lag­inu Freez­ing Po­int Corp voru sögð áber­andi í gögn­un­um en fé­lagið er í eigu Sig­urðar Gísla Björns­son­ar. Ekki náðist í Sig­urð vegna máls­ins á þeim tíma og sam­kvæmt frétt Frétta­blaðsins í dag neit­ar hann að tjá sig við blaðið.

Frétta­blaðið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert