Millilandaflug verði tryggt í sessi

Akureyrarflugvöllur.
Akureyrarflugvöllur. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Bæj­ar­ráð Ak­ur­eyr­ar hef­ur skorað á þing­menn, rík­is­stjórn, sam­gönguráð og Isa­via að grípa nú þegar til nauðsyn­legra ráðstaf­ana til að styðja við og tryggja í sessi milli­landa­flug um Ak­ur­eyr­arflug­völl.

Sveit­ar­stjórn Eyja­fjarðarsveit­ar hef­ur einnig tekið und­ir bók­un Ferðamála­fé­lags Eyja­fjarðar um að tryggja þurfi ör­uggt aðflug að Ak­ur­eyr­arflug­velli.

Bæj­ar­ráð Ak­ur­eyr­ar seg­ir brýnt að komið verði upp ILS-aðflugs­búnaði við völl­inn, að því er kem­ur fram í fund­ar­gerð.

Njáll Trausti Friðberts­son alþing­ismaður, sem starfaði sem flug­um­ferðar­stjóri á Ak­ur­eyri í ald­ar­fjórðung, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær að sinn skiln­ing­ur væri að fjár­veit­ing til kaupa á búnaðinum væri tryggð í fjár­lög­um sem samþykkt voru fyr­ir ára­mót.

Til­komu milli­landa­flugs um Ak­ur­eyr­arflug­völl var einnig fagnað á fundi bæj­ar­ráðs í tengsl­um við ferðir ferðaskrif­stof­unn­ar Super Break sem hóf­ust í síðustu viku.

Bæj­ar­ráðið kall­ar jafn­framt eft­ir því að for­svars­menn Isa­via og formaður sam­gönguráðs fundi með bæj­ar­stjórn vegna frek­ari fram­kvæmda við flug­völl­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert