Nokkrir skjálftar yfir 2 stig

Jarðskjálftar á landinu síðustu tvo sólarhringa.
Jarðskjálftar á landinu síðustu tvo sólarhringa. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Jörð held­ur áfram að skjálfa við Gríms­ey. Flest­ir eru skjálft­arn­ir litl­ir en í nótt urðu nokkr­ir skjálft­ar um og yfir 2 stig. Rétt eft­ir miðnætti mæld­ist 2,8 stiga skjálfti og ann­ar jafn­stór varð um hálft­vö í nótt. Þriðji skjálft­inn af þeirri stærð varð rétt fyr­ir sex í morg­un. 

Síðustu tvo sól­ar­hring­ana hafa 320 skjálft­ar mælst á land­inu. Fjór­ir hafa verið yfir 3 stig og 40 á milli 2 og 3 stig að stærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert