Haldlagning staðfest í viðamiklu skattamáli

mbl.is/Hjörtur

Lands­rétt­ur hef­ur staðfest úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­vík­ur um að hald­lagn­ingu héraðssak­sókn­ara á veru­leg­um fjár­mun­um í tengsl­um við viðamikla rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra á Sig­urði Gísla Björns­syni fiskút­flytj­anda og fyr­ir­tæki hans, Sæ­marki.

Fram kem­ur í úr­sk­urði héraðsdóms að ætluð brot bein­ist að van­töld­um skatt­stofni árin 2011-2016 upp á tæp­lega 1,3 millj­arða króna og telj­ist því stór­felld.

Lagt var hald á fjár­muni í ís­lensk­um krón­um, banda­rísk­um doll­ur­um, bresk­um pund­um, evr­um og kanadísk­um doll­ur­um að upp­hæð tæp­lega 153,5 millj­ón­ir króna miðað við gengi þegar hald­lagn­ing fór fram en hús­leit fór fram á skrif­stofu Sig­urðar Gísla 15. des­em­ber.

Málið má rekja til gagna sem keypt voru er­lend­is og sýndu fram á tengsl ís­lenskra skatt­greiðenda við fé­lög í skatta­skjól­um. Í kjöl­farið hóf skatt­rann­sókn­ar­stjóri rann­sókn á mál­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert