Lögmaður með stöðu sakbornings

mbl.is/Hjörtur

Lögmaður á fer­tugs­aldri er með stöðu sak­born­ings í rann­sókn á um­fangs­mikl­um skatta­laga­brot­um. Brot­in eru þau um­fangs­mestu sem hafa komið upp hér á landi að mati skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Greint var frá mál­inu í kvöld­frétt­um Stöðvar 2 þar sem fram kem­ur að Sig­urður Gísli Björns­son, stofn­andi og eig­andi út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæ­mark ehf., er grunaður um stór­felld skattaund­an­skot. Málið er til rann­sókn­ar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra og héraðssak­sókn­ara. Nafn hans kom upp í Pana­maskjöl­un­um og sem varð kveikj­an að rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Hús­leit var gerð á heim­ili Sig­urðar Gísla skömmu fyr­ir ára­mót og 1. mars staðfesti Lands­rétt­ur úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­vík­ur um hald­lagn­ingu héraðssak­sókn­ara á veru­leg­um fjár­mun­um vegna rann­sókn­ar á Sig­urði og Sæ­marki. Í úr­sk­urðinum seg­ir meðal ann­ars að ætluð brot bein­ist að van­töld­um skatt­stofni á tíma­bil­inu 2011-2016 og hljóðar upp á tæpa 1,3 millj­arða króna.

Í frétt Stöðvar 2 kem­ur einnig fram að lögmaður og viðskipta­fé­lagi Sig­urðar Gísla er Andri Gunn­ars­son, lögmaður hjá Nordik lög­fræðiþjón­ustu. Andri teng­ist þannig máli um­bjóðanda síns en hann var sjálf­ur með stöðu sak­born­ings og gerð var hús­leit á lög­manns­stofu hans í síðasta mánuði. Lands­rétt­ur hafnaði í síðustu viku kröfu Andra um að af­henda gögn sem hald­lögð voru í hús­leit­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert