Grænlenski skipverjinn Thomas Møller Olsen hefur verið dæmdur til 19 ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir að hafa myrt Birnu Brjánsdóttur 14. janúar í fyrra og fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Dómur Héraðsdóms Reykjaness frá því í fyrra var staðfestur.
Hann var einnig dæmdur til að greiða tæpar 29 milljónir í málskostnað og bætur. Thomas Møller var dæmdur til að greiða allan áfrýjunarkostnað, 10,7 milljónir króna.
Refsiramminn fyrir manndráp er ævilangt fangelsi en algengast er að menn séu dæmdir í 16 ára fangelsi. Við smyglinu liggur allt að 12 ára fangelsisrefsing.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sagði að sönnunargögn málsins sýndu að enginn skynsamlegur vafi væri uppi um hvort Olsen hefði svipt Birnu Brjánsdóttur lífi. Því bæri Landsrétti að sakfella hann.
Olsen hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar í fyrra en hann var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna í dag.
Birna Brjánsdóttir hvarf aðfaranótt laugardagsins 14. janúar 2017. Lík hennar fannst átta dögum síðar, eða 22. janúar, í fjörunni við Selvogsvita í Ölfusi. Hún var aðeins tvítug þegar hún lést.
Lögmaður Olsen sagði í samtali við mbl.is, eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp, að hann ætti eftir að kynna sér forsendur dómsins, en sagði aðspurður að það væri nánast öruggt að sótt yrði um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig frekar að svo stöddu.