Ákærður fyrir 245 milljóna skattsvik

Ákæra á hendur Haraldi Reyni Jónssyni hefur verið gefin út.
Ákæra á hendur Haraldi Reyni Jónssyni hefur verið gefin út. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Har­ald­ur Reyn­ir Jóns­son, einn systkin­anna sem kennd eru við út­gerðarfé­lagið Sjó­la­skip, hef­ur verið ákærður fyr­ir skatta­laga­brot. Er hon­um gert að sök að hafa van­talið tekj­ur ár­anna 2005-2008 og nema meint und­an­skot rúm­um 245 millj­ón­um króna.

Greint var frá því í síðustu viku að héraðssak­sókn­ari hefði gefið út ákær­ur á hend­ur systkin­un­um fjór­um hverju í sínu lagi, auk þess sem bræðurn­ir tveir yrðu ákærðir sam­eig­in­lega í sér­máli. Ákær­an á hend­ur Har­aldi er sú fyrsta sem birt er. 

Í nóv­em­ber árið 2016 greindi Frétta­tím­inn frá því að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefði sent viðskipti systkin­anna í skatta­skjól­inu Tor­tóla til rann­sókn­ar héraðssak­sókn­ara, en á meðal þess sem kom fram í frétt blaðsins var það að af­l­ands­fé­lög á Tor­tóla hefðu greitt kred­it­korta­reikn­inga fyr­ir ein­stak­linga í út­gerðarfjöl­skyld­unni. Kred­it­kort­in voru gef­in út í er­lend­um bönk­um og tengd við banka­reikn­inga sem skráðir voru á af­l­ands­fé­lög­in eða systkin­in sjálf.

Af því til­efni sagði Bryn­dís Kristjáns­dótt­ir skatt­rann­sókn­ar­stjóri að þetta væri alþekkt aðferð við að taka pen­inga út úr af­l­ands­fé­lög­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert