Sjórinn er mikilvæg matarkista

Norrænu umhverfisráðherrarnir hafa setið á fundi í allan dag í …
Norrænu umhverfisráðherrarnir hafa setið á fundi í allan dag í þinghúsinu í Stokkhólmi. Magnus Fröderberg/norden.org

Nor­ræn­ir um­hverf­is- og lofts­lags­ráðherr­ar und­ir­rituðu í dag yf­ir­lýs­ingu um sjálf­bærni í haf­mál­um á Norður­lönd­um og nauðsyn þess að draga úr áhrif­um lofts­lags­breyt­inga á hafið en fund­ur þeirra stend­ur nú yfir í Stokk­hólmi. Ísland fer með for­mennsku í nor­rænu ráðherra­nefnd­inni í ár og er hafið eitt af áherslu­mál­um Íslands.

Norður­lönd­in eru um­lukin sjó og því er það sam­eig­in­legt hags­muna­mál svæðis­ins að vernda hafið og tryggja sjálf­bæra um­gengni og nýt­ingu þess. Sjór­inn er mik­il­væg mat­arkista en hann hæg­ir einnig á lofts­lags­breyt­ing­um með því að draga í sig hita og kol­díoxíð úr and­rúms­loft­inu. Söfn­un kol­díoxíðs í haf­inu veld­ur súrn­un þess og hafið er því að breyt­ast í grund­vall­ar­atriðum, sér­stak­lega á Norður­slóðum.

Nýj­asta skýrsla milli­ríkja­nefnd­ar Sam­einuðu þjóðanna um lofts­lags­breyt­ing­ar (IPCC) sem fjall­ar um áhrif lofts­lags­breyt­inga á hafið og freðhvolfið staðfest­ir þetta. Þar seg­ir að þótt tími til aðgerða sé naum­ur sé enn hægt að draga úr ham­fara­hlýn­un. Það krefj­ist hins veg­ar metnaðarfullra og sam­hæfðra aðgerða af hálfu alþjóðasam­fé­lags­ins.

„Öll höf heims­ins eru sam­tengd og því höf­um við ekki val um annað en að vinna sam­an að því að hægja á þeim breyt­ing­um sem eru að verða á haf­inu,“ seg­ir Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, um­hverf­is- og auðlindaráðherra, í til­kynn­ingu.

„Við þurf­um líka að auka þekk­ingu okk­ar á þess­um breyt­ing­um með auk­inni vökt­un á haf­inu og áhrif­um henn­ar á líf­ríki sjáv­ar. Á það hef­ur Ísland lagt áherslu alþjóðlega auk þess að stór­auka vökt­un á súrn­un sjáv­ar við strend­ur Íslands í sam­starfi við Haf­rann­sókna­stofn­un.“

Í yf­ir­lýs­ingu nor­rænu um­hverf­is­ráðherr­anna sem und­ir­rituð var í dag lýsa ráðherr­arn­ir áhyggj­um af niður­stöðum skýrslu IPCC og und­ir­strika mik­il­vægi þess að setja auk­inn kraft í alþjóðlegt sam­starf vegna lofts­lags­mála og sjálf­bærni hafs­ins. Ráðherr­arn­ir leggja áherslu á að stuðlað verði að orku­skipt­um á hafi þannig að draga megi úr los­un gróður­húsaloft­teg­unda frá sjáv­ar­út­vegi. Þá und­ir­strika þeir nauðsyn þess að vernda vist­kerfi hafs­ins, og benda á að stofn­un sam­felldra vernd­ar­svæða á hafi og sjálf­bær stýr­ing hafsvæða séu mik­il­væg­ar for­send­ur fyr­ir því að styrkja viðnám vist­kerfa hafs­ins gegn lofts­lags­breyt­ing­um og súrn­un sjáv­ar.

Auk­in áhersla hef­ur verið á lofts­lags­mál í nor­rænu sam­starfi á und­an­förn­um miss­er­um. Má þar nefna sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu Norður­land­anna um kol­efn­is­hlut­leysi sem und­ir­rituð var í Hels­inki í byrj­un árs­ins, nýja framtíðar­sýn Norður­land­anna þar sem þau stefna að því að verða sjálf­bær­asta svæði heims og sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu for­sæt­is­ráðherra Norður­land­anna og hóps nor­rænna for­stjóra um sam­starf um að sporna við lofts­lags­breyt­ing­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert