Sífelldur samanburður eykur vanlíðan

Mynd úr safni mbl.is
Mynd úr safni mbl.is mbl.is/hag
Á hverju ári falla 3500 manns fyr­ir eig­in hendi á Norður­lönd­un­um og hvergi í heim­in­um eru sjálfs­víg­in jafn mörg og á Græn­landi. Í Nor­egi falla sex sinn­um fleiri fyr­ir eig­in hendi en lát­ast í bíl­slys­um. Vel­ferðar­nefnd Norður­landaráðs legg­ur til að lönd­in sam­ein­ist um for­varn­araðgerðir. 
Nefnd­in tel­ur það áhyggju­efni hve marg­ir íbú­ar á Norður­lönd­um þjást af van­líðan og fremja á end­an­um sjálfs­víg. Að mati nefnd­ar­inn­ar ættu Norður­lönd­in að sam­ein­ast um for­varn­araðgerðir og deila þekk­ingu og bestu mögu­legu starfs­hátt­um sín á milli.

„Við get­um ekki setið aðgerðalaus meðan ung­menni á Norður­lönd­um fremja sjálfs­víg áður en líf þeirra hefst fyr­ir al­vöru. Þess vegna verða nor­rænu lönd­in að deila þekk­ingu hvert með öðru og finna í sam­ein­ingu fyr­ir­byggj­andi lausn­ir fyr­ir ung­menni og annað fólk í áhættu­hópi fyr­ir sjálfs­víg,“ seg­ir Bente Stein Mat­hisen, formaður nor­rænu vel­ferðar­nefnd­ar­inn­ar. Til­lag­an er lögð fram af flokka­hópi jafnaðarmanna í Norður­landaráði.  

Í Dan­mörku fremja sex hundruð sjálfs­víg á hverju ári en það er þris­var sinn­um fleiri en lát­ast í um­ferðarslys­um. Á hverj­um degi taka tíu manns eigið líf á Norður­lönd­un­um.

Sjálfs­víg eiga sér marg­vís­leg­an og per­sónu­bund­inn aðdrag­anda en í gróf­um drátt­um sam­an­stend­ur áhættu­hóp­ur­inn af ung­menn­um sem glíma við van­líðan, ein­stak­ling­um með geðræn­an vanda, eldra fólki sem þjá­ist af ein­mana­leika, syrgj­andi fólki og fólki sem mis­not­ar fíkni­efni. Þar sem or­sak­irn­ar eru marg­vís­leg­ar er snúið að fyr­ir­byggja vand­ann. Vel­ferðar­nefnd­in ætl­ar að leggja til við nor­rænu ráðherra­nefnd­ina að hún komi á sam­starfi um þessi mál og fast­setji það sam­eig­in­lega mark­mið að draga úr sjálfs­víg­um um 25 pró­sent, auk þess að stefna að því að fyr­ir­byggja al­veg sjálfs­víg ung­menna und­ir 18 ára aldri.        

„Í þessu sam­hengi virðist þversagna­kennt að Norður­lönd­in skuli mæl­ast með ham­ingju­söm­ustu lönd­um heims, sam­kvæmt skýrsl­unni Skyg­gen af Lykke („Ham­ingju­skugg­an­um“). Um leið blas­ir við að sjálfs­víg eru al­geng í lönd­um okk­ar. Marg­ir rann­sak­end­ur telja sí­felld­an sam­an­b­urð við annað fólk eiga þátt í hárri tíðni sjálfs­víga. Ef all­ir í kring­um mann virðast glaðir og ánægðir get­ur dep­urð og van­líðan orðið enn þung­bær­ari. Það er enn ein breyt­an í ástandi sem er flókið fyr­ir,“ sam­kvæmt vef Norður­landaráðs.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert