Framkvæmdaleyfi vegna Hvalárvirkjunar fallið úr gildi

Greint hafði verið frá því að framkvæmdum við Hvalárvirkjun yrði …
Greint hafði verið frá því að framkvæmdum við Hvalárvirkjun yrði frestað um óákveðinn tíma vegna markaðsaðstæðna. mbl.is/RAX

Fram­kvæmda­leyfi Vest­ur­verks vegna gerðar vinnu­vega og efnis­töku fyr­ir rann­sókn­ir vegna Hvalár­virkj­un­ar er fallið úr gildi, en sam­kvæmt 2. mgr. 15. gr. skipu­lagslaga fell­ur fram­kvæmda­leyfi úr gildi hafi fram­kvæmd ekki verið haf­in inn­an tólf mánaða frá út­gáfu þess. Fram­kvæmda­leyfi vegna Hvalár­virkj­un­ar var gefið út 12. júní 2019.

Greint hafði verið frá því að fram­kvæmd­um við Hvalár­virkj­un yrði frestað um óákveðinn tíma vegna markaðsaðstæðna og hafði báðum starfs­mönn­um Vest­ur­verks á Ísaf­irði verið sagt upp.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá ÓFEIGU nátt­úru­vernd hóf­ust fram­kvæmd­ir aldrei á grund­velli fram­kvæmda­leyf­is­ins. Vest­ur­verk vann hins veg­ar um skamma hríð sum­arið 2019 að vega­gerð á Ófeigs­fjarðar­vegi, sem ligg­ur að Hvalá, á grunni ann­ars fram­kvæmda­leyf­is og samn­ings við Vega­gerðina um viðhald þjóðveg­ar, en þeim samn­ingi hef­ur verið sagt upp.

Sam­kvæmt upp­sagn­ar­bréf­inu, sem mbl.is hef­ur und­ir hönd­um, eru „eng­in áform um að hætta við verk­efnið en aðeins verið að hægja á því um óákveðinn tíma, m.a. vegna aðstæðna á raf­orku­markaði“.

Frétt­in hef­ur verið upp­færð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert