Hafnfirðingar hvattir til að skreyta strax

Hafnfirðingar eru hvattir til þess að setja jólaljósin upp snemma …
Hafnfirðingar eru hvattir til þess að setja jólaljósin upp snemma í ár. mbl.is/Ómar Óskarsson

Jóla­bær­inn Hafn­ar­fjörður er á leið í jóla­föt­in þessa dag­ana og er unnið hörðum hönd­um að því að setja upp jóla­ljós í bæn­um. Þetta kem­ur fram á vef Hafn­ar­fjarðar, þar sem seg­ir að ákveðið hafi verið að setja jóla­ljós­in snemma upp í ár í ljósi ástands­ins.

Íbúar eru hvatt­ir til þess að taka jóla­ljós­in fram snemma í ár. 

Nú þegar hafa jóla­ljós verið sett upp á nokkr­um fjöl­förn­um stöðum í bæn­um með það fyr­ir aug­um að gleðja augað og and­ann og lýsa upp skamm­degið. Jóla­bær­inn Hafn­ar­fjörður er við það að detta í jólagír­inn!“ seg­ir á vefn­um.

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert