Gefa 20 milljónir til stuðnings þeim sem standa höllum fæti vegna kórónuveirufaraldursins

Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf sagði að styrkurinn kæmi …
Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf sagði að styrkurinn kæmi sér sannarlega vel á erfiðum tímum. Sigþrúður sést hér ásamt Þórði Magnússyni.

Eyr­ir In­vest hf. hef­ur í dag styrkt Sam­tök um kvenna­at­hvarf, Geðhjálp, Fjöl­skyldu­hjálp Íslands og Mæðra­styrksnefnd­ir Reykja­vík­ur og Ak­ur­eyr­ar um sam­tals 20 millj­ón­ir króna til að styðja skjól­stæðinga þess­ara fé­laga sem orðið hafa illa úti í heims­far­aldr­in­um. 

Eyr­ir hef­ur ár­lega styrkt góðgerðar­mál inn­an­lands en heild­ar­upp­hæðin er hærri að þessu sinni í til­efni 20 ára af­mæl­is fyr­ir­tæk­is­ins og í ljósi ástands­ins í sam­fé­lag­inu, að því er fé­lagið grein­ir frá í til­kynn­ingu. 

„Eyr­ir á 20 ára starfsaf­mæli á ár­inu og hef­ur notið vel­gengni með því að styðja við hug­vit, ný­sköp­un og lang­tíma­upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja en Eyr­ir er einn stærsti fjár­fest­ir í ný­sköp­un á Íslandi í gegn­um vísi­sjóðina Eyr­ir sprot­ar og Eyr­ir Vent­ur­es. Nú eiga marg­ir erfitt vegna áhrifa heims­far­ald­urs­ins, hafa orðið fyr­ir tekjum­issi, heilsutjóni og ein­angr­un. Við vilj­um leggja okk­ar af mörk­um til að aðstoða sam­tök sem vinna í þeirra þágu. Um leið hvetj­um við önn­ur fyr­ir­tæki sem eru af­lögu­fær til að gera slíkt hið sama. Við verðum að styðja hvert annað eft­ir megni á meðan far­ald­ur­inn geng­ur yfir, vera hvetj­andi og halda í bjart­sýn­ina,“ seg­ir Þórður Magnús­son, stjórn­ar­formaður Eyr­is In­vest, í til­kynn­ingu. 

Full­trú­um of­an­greindra góðgerðarsam­taka voru af­hent­ir styrk­irn­ir í dag og færðar þakk­ir og góðar kveðjur frá Eyri In­vest.  

Sigþrúður Guðmunds­dótt­ir, fram­kvæmda­stýra Sam­taka um kvenna­at­hvarf, sagði að styrk­ur­inn kæmi sér sann­ar­lega vel á erfiðum tím­um. „Kvenna­at­hvarfið er sem fyrr opið kon­um og börn­um sem geta ekki búið heima hjá sér vegna of­beld­is. Því miður hef­ur fjölgað í þess­um hópi í heims­far­aldr­in­um. Við höf­um þurft að gera ýms­ar ráðstaf­an­ir til að styrkja sótt­varn­ir sam­hliða því að tryggja ör­yggi skjól­stæðinga okk­ar. Þessi styrk­ur kem­ur því í góðar þarf­ir.“

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert