Mest hækkun í Nettó og Bónus

Matarkarfan hefur hækkað í verði frá því í vor.
Matarkarfan hefur hækkað í verði frá því í vor. mbl.is/Brynjar Gauti

Vörukarfa Alþýðusam­bands­ins hef­ur hækkaði í verði um 0,5%-2,6% frá því í maí. Þetta sýn­ir ný verðkönn­un Alþýðusam­bands­ins. Mest var hækk­un­in í Nettó, um 2,6% og næst­mest í Bón­us, 2,4%. Minnst var hækk­un­in hins veg­ar í Hag­kaup­um þar sem hækk­un­in nam 0,5%.

Þá hækkaði verð um 2,1% í versl­un­um Ice­land, um 1,8% í Kjör­búðinni og 1,7% í Kram­búðinni.

Verðbreyt­ing­ar ein­stakra vöru­flokka voru æði mis­jafn­ar milli versl­ana. Þannig hækkaði verð á græn­meti og ávöxt­um um 6,8% milli mæl­inga í Bón­us, 2,6% í Krón­unni og 0,4% í Hag­kaup­um. Í öðrum versl­un­um lækkaði verð hins veg­ar milli mæl­inga.

Mat­arkarfa ASÍ sam­an­stend­ur af al­menn­um mat­ar- og drykkjar­vör­um, svo sem brauði, morgun­korni, pasta kjöti, fiski, græn­meti, ávöxt­um, pakka­vör­um, kaffi, gosi og safa. Við sam­setn­ingu körf­unn­ar eru hafðar til hliðsjón­ar vog­ir Hag­stof­unn­ar um vægi hvers flokks svo karf­an end­ur­spegli al­menn inn­kaup meðal­heim­il­is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert