Ávallt skal taka hótanir alvarlega

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ut­an­rík­is­ráðherra seg­ir að ávallt skuli taka hót­an­ir al­var­lega. Sjaldn­ast verði neitt úr þeim en alltaf gæti verið ein­hver sem vill fylgja þeim eft­ir. „Við skul­um ekki van­meta hvað þetta er al­var­legt,“ sagði Guðlaug­ur Þór, sem fékk líf­láts­hót­an­ir á sam­fé­lags­miðlum árið 2019 í tengsl­um við þriðja orkupakk­ann.

Í Sprengisandi á Bylgj­unni sagði hann að haft hefði verið sam­band við aðilana sem hótuðu hon­um á sín­um tíma. Saga hefði verið sett af stað og hann þurft að bregðast við henni. „Hún fór eins og eld­ur í sinu. Síðan þurfti maður að hlaupa til strax og leiðrétta þetta,“ sagði hann. „Þetta var full­kom­in þvæla frá a til ö.“

Guðlaug­ur nefndi að þó svo að leiðrétt­ing á svona sögu birt­ist op­in­ber­lega þá sæju hana ekki nema kannski um 80% af þeim sem sáu hina frétt­ina, ef allt geng­ur vel. „Það er ekk­ert sjálf­gefið að fólk fái leiðrétt­ing­una og skilji út á hvað málið geng­ur. Það er auðvelt að koma hlut­un­um af stað,“ sagði hann.

Ráðherra nefndi í þessu sam­hengi hversu mik­il­vægt væri stuðla að auknu ör­yggi á net­inu, meðal ann­ars svo að fölsk­um frétt­um yrði ekki komið af stað.

Hann minnt­ist á skotárás­ina á bíl borg­ar­stjóra og sagði að ekki mætti van­meta hversu gæfu­sam­ir Íslend­ing­ar hefðu verið hvað viðkem­ur ógn sem þess­ari í garð stjórn­mála­manna. „Það að við höf­um verið laus við þetta eru mik­il for­rétt­indi,“ sagði hann. „Við þurf­um að huga að því hvernig við get­um séð til þess að þetta verði svona um alla framtíð.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert