„Ég er bara að benda kurteislega á það, að að sumu leyti eru viðbrögðin við þessu máli yfirdrifin,“ segir Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is vega færslu hans á Facebook frá því í dag.
Þar segist Páll ekki gera lítið úr hættunni sem stafar af því að truflaður maður hlaupi um með byssu og skjóti á hús og bíla og vísar þannig í skotárásir á húsnæði stjórnmálaflokka og á bíl borgarstjóra.
„En fyrir alla muni hættið að tala um yfirvofandi hryðjuverkahættu, brynvarin ökutæki og sérsveitir til að passa stjórnmálamenn. Ekki fara á límingunum!“ segir Páll í færslu sinni.
Færsluna má lesa hér:
Nú vil ég ekki gera lítið úr hættunni sem stafar af því að truflaður maður hleypur um með byssu og skýtur á hús og bíla....
Posted by Páll Magnússon on Sunday, 31 January 2021
Páll segist ekki vera að vísa í ein sérstök ummæli, en hann telji fólk vera að lesa allt of mikið í það, sem í fyrstu sýn virðist ekki vera neitt annað en truflaður einstaklingur, en ekki viðverandi breytt ástand í þjóðfélaginu.