Lögregla taldi skotárás minniháttar skemmdarverk

Notast var við haglabyssu til að skjóta á bílinn.
Notast var við haglabyssu til að skjóta á bílinn. Ljósmynd/aðsend

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu flokkaði skotárás á bif­reið íbúa í Voga­hverfi í mars á síðasta ári sem minni­hátt­ar skemmd­ar­verk. Íbú­inn, sem ekki vill koma fram und­ir nafni, er ósátt­ur við það hvernig málið var meðhöndlað hjá lög­reglu þar sem það var látið niður falla.

„Um fimm­leytið að morgni til heyri ég ægi­leg­an hvell fyr­ir utan hjá mér. Ég hrökk við en spáði ekki mikið í þetta og fór að sofa aft­ur. Svo um morg­un­inn fór ég út og sá að það var eins og bíll­inn hefði lent í bíl­sprengju,“ seg­ir maður­inn í sam­tali við mbl.is. 

Flokkað sem minni­hátt­ar skemmd­ar­verk

Hann hafði sam­band við lög­reglu og kom tækni­deild henn­ar á svæðið. Einnig lét hann lög­reglu í té gögn á borð við mynd­band af at­vik­inu úr ör­ygg­is­mynda­vél. 

Í fram­hald­inu beið maður­inn fregna af rann­sókn­inni. Hafði hann að lok­um sam­band við lög­reglu þar sem hann spurði um málið og fékk þær upp­lýs­ing­ar að málið væri flokkað sem minni­hátt­ar skemmd­ar­verk. Hann undi því ekki og kærði málið. Fékk hann í októ­ber síðastliðnum bréf þess efn­is að málið hefði verið fellt niður og  rann­sókn á mál­inu hefði verið hætt þar sem ekki hefði verið tal­inn grund­völl­ur til að halda henni áfram. Þá kem­ur fram í bréf­inu að málið hafi áfram verið flokkað sem minni­hátt­ar skemmd­ar­verk.  

Málið var látið niður falla og flokkað sem minniháttar skemmdarverk.
Málið var látið niður falla og flokkað sem minni­hátt­ar skemmd­ar­verk.

Mbl.is með gögn und­ir hönd­um gögn sem staðfesta frá­sögn manns­ins um að skotárás hafi átt sér stað og að lög­regla hafi verið með málið á sinni könnu. 

Tel­ur ósam­ræmi í því hvernig tekið er á mál­um

Í fram­haldi kærði maður­inn málið til rík­is­sak­sókn­ara og er það enn þar til úr­vinnslu. 

„Svo er skotið með loftriffli á bíl borg­ar­stjóra og þá er maður kom­inn í gæslu­v­arðhald um leið,“ seg­ir maður­inn sem tel­ur ósam­ræm­is gæta í mál­un­um tveim­ur. 

„Það sýður á manni út af því hvernig þetta var höndlað. Maður er svo varn­ar­laus þegar lög­regl­an hætt­ir að virka.  Að minnsta kosti vill maður að málið sé rann­sakað,“ seg­ir maður­inn.  

Bíllinn skemmdist talsvert.
Bíll­inn skemmd­ist tals­vert. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert