22.000 vilja að fórnarlamb mansals fái vernd

00:00
00:00

Rúm­lega 22.000 manns hafa skrifað und­ir áskor­un á hend­ur ís­lensk­um stjórn­völd­um vegna hins níg­er­íska Uhunoma Osayomore. Fólkið skor­ar á ís­lensk stjórn­völd að veita Uhunoma alþjóðlega vernd eða dval­ar­leyfi hér­lend­is af mannúðarsjón­ar­miðum. 

Uhunoma ræddi við mbl.is ný­verið og má sjá viðtalið hér að ofan.

Í pistli með und­ir­skrifta­söfn­un­inni er stutt­lega farið yfir sögu Uhunoma. 

„Uhunoma er 21 árs og er frá Níg­er­íu. Árið 2016, þegar hann var aðeins 16 ára, flúði hann frá heim­ili sínu í Níg­er­íu eft­ir að faðir hans myrti móður hans og yngri syst­ir lést af slys­för­um.

Hann fór til Lagos, höfuðborg­ar lands­ins, og lenti þar í hönd­um þræla­sala sem seldu hann man­sali og upp­hófst þar með hræðilegt ferðalag sem leiddi hann til Íslands í októ­ber 2019. Á leiðinni upp­lifði hann hrylli­lega hluti, varð vitni að morðum, var haldið föngn­um í fjár­húsi og varð ít­rekað fyr­ir kyn­ferðis­legu of­beldi. Í þrjú ár bjó hann í flótta­mann­a­í­búðum á Ítal­íu.

Hann hóf ferðalagið sem barn en endaði á Íslandi sem ein­stæður full­orðinn maður.“

Segja aðstæðurn­ar lífs­hættu­leg­ar

Uhunoma býr hjá ís­lenskri fjög­urra barna fjöl­skyldu og seg­ir í fyrr­nefnd­um pistli að fjöl­skyld­an geti ekki hugsað sér að missa Uhunoma úr lífi sínu. 

„Uhunoma þarfn­ast engr­ar aðstoðar ís­lenska rík­is­ins og á sér aðeins þá einu ósk að fá að lifa ótta­lausu lífi sem full­gild­ur borg­ari á Íslandi með fjöl­skyldu sinni og vin­um,“ seg­ir í pistl­in­um og jafn­framt:

„Nú er komið að því að ís­lensk stjórn­völd ætla að vísa Uhunoma úr landi, jafn­vel þótt hans málsmeðferð sé enn í gangi, og ætla stjórn­völd þannig, enn einu sinni, að vísa fórn­ar­lambi man­sals úr landi og til baka í aðstæður sem eru hon­um lífs­hættu­leg­ar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert