Neitar sök í skotmáli á bíl borgarstjóra

Skotgöt á skrifstofu Samfylkingarinnar.
Skotgöt á skrifstofu Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður­inn, sem var hand­tek­inn fyr­ir að hleypa af byssu á bíl Dags B. Eggerts­son­ar borg­ar­stjóra, neit­ar sök í mál­inu. Þetta staðfesti frá­far­andi verj­andi manns­ins í sam­tali við mbl.is en hann mun skipta um verj­anda á næstu dög­um. 

Maður­inn hef­ur stöðu sak­born­ings í rann­sókn héraðssak­sókn­ara á skot­mál­inu.

Að sögn frá­far­andi verj­anda er það að hans beiðni, en hann hef­ur beðist und­an því að sinna saka­mál­um sem fjallað er um í fjöl­miðlum. Við mál­inu tek­ur Stein­berg­ur Finn­boga­son sem verj­andi.

„Sem bet­ur fer erum við með rétt­ar­kerfi sem bygg­ir á því að menn eru sak­laus­ir uns sekt er sönnuð og það hef­ur eng­in sekt verið sönnuð í þessu máli,“ seg­ir Stein­berg­ur í sam­tali við mbl.is.

Lands­rétt­ur taldi mann­inn ekki hættu­leg­an

Sá grunaði var úr­sk­urðaður í tveggja daga gæslu­v­arðhald til að byrja með, frá laug­ar­degi til mánu­dags, þar sem hann var einnig í ein­angr­un.

Eft­ir það var gæslu­v­arðhaldið fram­lengt bæði á grund­velli a- og d- liðar, þ.e. bæði á grund­velli rann­sókn­ar­hags­muna og á grund­velli þess að gæslu­v­arðhald megi telja  nauðsyn­legt til að verja aðra fyr­ir árás­um sak­born­ings ell­egar hann sjálf­an fyr­ir árás­um eða áhrif­um annarra manna.

Maður­inn kærði gæslu­v­arðhaldið til Lands­rétt­ar sem staðfesti á fimmtu­dag­inn gæslu­v­arðhald yfir hon­um en ein­ung­is á grund­velli rann­sókn­ar­hags­muna. 

Ein­angr­un ekki sjálf­sögð

Kol­brún Bene­dikts­dótt­ir vara­héraðssak­sókn­ari seg­ir ekki sjálf­gefið að fólk sem sæti gæslu­v­arðhaldi fari í ein­angr­un og sér­stak­lega þurfi að færa rök fyr­ir því. 

„Það eru mjög strang­ar kröf­ur gerðar til þess að fólk sé í ein­angr­un,“ seg­ir Kol­brún í sam­tali við mbl.is

Þó var farið fram á ein­angr­un yfir mann­in­um í bæði skipt­in sem hann var dæmd­ur í gæslu­v­arðhald. Héraðsdóm­ur féllst ekki á ein­angr­un­ar­beiðni í seinna skiptið, á meðan maður­inn sat í gæslu­v­arðhaldi frá mánu­degi síðustu viku til föstu­dags.

Ekki var látið reyna á áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir mann­in­um eft­ir föstu­dag­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert