Aðgengi að hleðslustöðvunum ekki brýnir hagsmunir

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Kær­u­nefnd útboðsmá­la hafnaði beiðni Reykja­vík­ur­borg­ar um frest­un réttaráhrifa og úr­sk­urðar um hleðslu­stöðvar ON í Reykja­vík. Nefnd­in ógilti samn­ing ON og Reykja­vík­ur­borg­ar um rekst­ur stöðvanna snemma í sum­ar og þær hafa staðið ónot­hæf­ar síðan 25. júní.

Reykja­vík­ur­borg hafði óskað eft­ir því að fresta réttaráhrif­um úr­sk­urðar­ins og halda stöðvun­um þannig í virkni. Borg­in hélt því fram að ef stöðvarn­ar stæðu straum­laus­ar myndi skerða mjög veru­lega mögu­leika bí­leig­enda á því að hlaða bif­reiðarn­ar sín­ar.

Sjá ekki vand­ræðaástand á sviði hleðslu­mála

Nefnd­in sagðist ekki geta fall­ist á það þar sem eng­in gögn lægju fyr­ir um að vand­ræðaástand ríkti á sviði hleðslu­mála eða að slíkt ástand hafi skap­ast eft­ir úr­sk­urð nefnd­ar­inn­ar:

„Þá benda gögn einnig til að nýt­ing hleðslu­stöðva þeirra sem samn­ing­ur­inn tók til hafi áður en óvirkni hans var lýst yfir verið langt und­ir því sem miðað er við til framtíðar. Sam­kvæmt því virðist hæpið að álykta að hags­mun­ir al­menn­ings að auknu aðgengi að hleðslu­stöðvum telj­ist brýn­ir í dag í skiln­ingi 1. mgr. 117. gr. laga um op­in­ber inn­kaup.“

Ákvörðunin von­brigði

Reykja­vík­ur­borg seg­ir næstu skref til skoðunar en ekki væri ljóst á þess­um tíma­punkti hver þau væru.

ON lýs­ir yfir mikl­um von­brigðum með ákvörðun nefnd­ar­inn­ar: „Rétt eins og við sögðum í at­huga­semd­um okk­ur til nefnd­ar­inn­ar þá hef­ur notk­un þess­ara götu­hleðslna auk­ist jafnt og þétt. Það er ekki síst efnam­inna fólk, náms­menn, ungt barna­fólk, fólk á leigu­markaði o.s.frv. sem treysta einna helst á þess­ar götu­hleðslur.

Það að loka fyr­ir­vara­laust þess­um tengj­um hef­ur mik­il áhrif á þessa hópa. Við telj­um enn frem­ur að með lok­un­inni sé verið að setja stein í veg orku­skipta sem verður stærri og stærri með hverj­um deg­in­um sem líður.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert