ON hafði betur og hverfahleðslur opna á ný

Nýju hleðslustöðvarnar frá Orku náttúrunnar sem verða opnaðar á ný.
Nýju hleðslustöðvarnar frá Orku náttúrunnar sem verða opnaðar á ný. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Orka nátt­úr­unn­ar hafði í dag bet­ur í dóms­máli sem fyr­ir­tækið höfðaði eft­ir að kær­u­nefnd útboðsmá­la hafði ógilt útboð á svo­kölluðum hverfa­hleðslu­stöðvum fyr­ir raf­magns­bíla. Var það gert að kröfu Ísorku, sam­keppn­isaðila ON, sem taldi útboðið ekki hafa verið sam­kvæmt lög­um. Þurfti ON í kjöl­farið að slökkva á stöðvun­um, en mun í kjöl­far dóms­ins opna þær aft­ur í vik­unni. Frá þessu grein­ir ON í til­kynn­ingu.

Í dómi máls­ins kem­ur meðal ann­ars fram að málsmeðferð kær­u­nefnd­ar útboðsmá­la hafi verið „veru­leg­um ann­mörk­um háð“. Kær­u­nefnd­inni hafi borið að vísa mál­inu frá þar sem kröf­ur Ísorku hafi verið sett­ar fram og seint og að samn­ings­fjár­hæð samn­ings­ins sem boðinn var út hafi ekki náð lág­marks­viðmiði. Vegna þessa og með „til­liti til annarra ann­marka á málsmeðferðinni“ féllst dóm­stóll­inn því á að ógilda úr­sk­urðinn.

156 stöðvar víðs veg­ar um borg­ina

Um er að ræða 156 götu­hleðslu­stöðvar sem eru staðsett­ar víðs veg­ar um borg­ina. Orka nátt­úr­unn­ar þurfti að rjúfa straum á stöðvarn­ar 28. júní, en málið fékk í kjöl­farið hraðmeðferð fyr­ir héraðsdómi.

Reykja­vík­ur­borg bauð út upp­setn­ingu og rekst­ur götu­hleðslna og tók til­boði frá ON sem bauð lægst í verk­efnið. Úrsk­urðar­nefnd útboðsmá­la komst síðan að þeirri niður­stöðu eft­ir kæru Ísorku að Reykja­vík­ur­borg hefði átt að bjóða verkið út á Evr­ópska efna­hags­svæðinu. Ekki var tekið und­ir önn­ur sjón­ar­mið Ísorku sem þó voru fjöl­mörg. Sam­kvæmt niður­stöðu úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar var ON hvorki heim­ilt að taka gjald fyr­ir af­not af götu­hleðslum né að sér­merkja bíla­stæðin sem þær standa við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert