Riftir samningum við bændur vegna ólíðandi meðferðar

Ísteka hefur átt í samstarfi við 119 bændur á árinu.
Ísteka hefur átt í samstarfi við 119 bændur á árinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Líf­tæknifyr­ir­tækið Ísteka hef­ur tekið ákvörðun um að rifta samn­ing­um við bænd­ur vegna ólíðandi meðferðar hrossa.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Ný­lega birt­ist mynd­skeið á veg­um sviss­neskra dýra­vernd­ar­sam­taka um blóðtöku mera á Íslandi, þar sem sjá mátti slæma meðferð hrossa af hálfu sam­starfs­bænda Ísteka.

„Þessi meðferð er aug­ljós­lega brot á vel­ferðarsamn­ing­um fyr­ir­tæk­is­ins og viðkom­andi bænda. Samn­ing­um við þá hef­ur því verið rift,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Í sam­starfi með tæp­lega 120 bænd­um

Á þessu ári hef­ur Ísteka verið í sam­starfi við 119 bænd­ur um blóðgjaf­ir hryssa til lyfja­fram­leiðslu en gerðir voru viðskipta­samn­ing­ar og sér­stak­ir vel­ferðarsamn­ing­ar við þá alla.

Tekið er þá fram að blóðgjöf til lyfja­fram­leiðslu er eina bú­grein­in á Íslandi þar sem slík­ir samn­ing­ar eru regla og eru bænd­ur al­mennt tald­ir vinna í sam­ræmi við þá.

Óviðeig­andi frá­vik þrátt fyr­ir eft­ir­lit

Nú þegar eru all­ar blóðgjaf­ir fram­kvæmd­ar af dýra­lækn­um og á starf­sem­in að vera und­ir eft­ir­liti bæði Mat­væla­stofn­un­ar og Ísteka þar sem sér­stak­ur dýra­vel­ferðarfull­trúi starfar. 

„En þrátt fyr­ir að reglu­verk um blóðgjaf­ir sé strangt og eft­ir­lit mjög mikið er ljóst að óviðeig­andi frá­vik geta komið upp. Slíkt er ekki liðið af hálfu Ísteka og samn­ing­um við bænd­ur er rift ef ekki er staðið við þá.“

Ætla að ráðast í um­bæt­ur

Að lok­um kem­ur fram að Ísteka hef­ur ákveðið að leggja af stað í um­fangs­mikl­ar um­bæt­ur á eft­ir­liti í sam­starfi við sér­fræðinga á sviði búfjár­halds og dýra­vel­ferðar þar sem að lagt verður áherslu á aukna fræðslu og þjálf­un fyr­ir sam­starfs­bænd­ur, fjölg­un vel­ferðareft­ir­lits­manna og auk þess verður mynda­véla­eft­ir­lit með öll­um blóðgjöf­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert