Tekjumódel Rúv ótengt öðrum miðlum

Fram­lög til Rík­is­út­varps­ins verði auk­in um 420 millj­ón­ir króna samkvæmt …
Fram­lög til Rík­is­út­varps­ins verði auk­in um 420 millj­ón­ir króna samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi, en styrkir til einkarekinna miðla lækka um 2%. mbl.is/Eggert Jóhannesson

420 millj­óna króna aukið fjár­fram­lag til Rík­is­út­varps­ins hafði ekki áhrif á skerðingu styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla að sögn Lilju Dagg­ar Al­freðsdótt­ur, ferðamála-, viðskipta- og menn­ing­ar­málaráðherra. Hún seg­ir styrk­ina ekki tengda og að inn­byggt tekjumód­el Rúv hafi valdið þess­ari þróun.

Rekstr­araðilar einka­rek­inna fjöl­miðla voru marg­ir síður en svo sátt­ir þegar fjár­laga­frum­varp til næsta árs var kynnt. Þar kem­ur fram að styrk­ir til fjöl­miðla skuli lækkaðir um 2%, eða um átta millj­ón­ir.

Kraf­an um aðhald náði þó ekki til allra fjöl­miðla en fram­lög úr rík­is­sjóði voru stór­auk­in til Rúv. Nam aukn­ing­in 8% eða um 420 millj­ón­um króna. Tel­ur því heild­ar­fram­lagið til miðils­ins ríf­lega fimm millj­arða króna.

Þess ber að geta að aukn­ing­in til Rík­is­út­varps­ins nem­ur meira fjár­magni en upp­hæðin sem all­ir einka­rekn­ir miðlar fá í sinn hlut sem er um 384 millj­ón­ir króna sam­tals.

Ekki sátt við þró­un­ina

„Þetta er auðvitað ekki tengt. Rúv hækk­ar vegna þess að það eru fleiri sem greiða af­nota­gjöld­in en þeir voru færri á síðasta ári,“ seg­ir Lilja, spurð út í fjár­laga­frum­varpið, og bæt­ir við að lækk­un styrkja til einka­rek­inna miðla megi rekja til aðhalds­kröfu sem lögð var á mál­efna­svið 18 og 19 sem miðlarn­ir heyra und­ir.

Lilja kveðst þó ekki sátt við þessa þróun og seg­ir hana ástæðu til að rýna bet­ur í hvernig rík­is­fjár­mál­in séu hugsuð með hliðsjón af fjár­fram­lög­um til fjöl­miðla.

„Þetta er bara enn frek­ari hvatn­ing til mín sem fjöl­miðlaráðherra að sækja áfram fram í þágu fjöl­miðla í land­inu því þeir skipta miklu máli varðandi alla umræðu, varðandi tungu­málið og aðhald.“

Vill skoða skatt­lagn­ingu á stóru veiturn­ar

Spurð hvort hún bú­ist við ein­hverj­um frek­ari aðgerðum til að koma til móts við fjöl­miðla í ljósi stöðunn­ar, kveðst Lilja ekki meðvituð um hvað fjár­laga­nefnd hyggst gera.

Hún tel­ur þó til­efni til að skoða skatt­lagn­ingu á stóru veiturn­ar sem hafa fengið mikl­ar aug­lýs­inga­tekj­ur. Væri þannig hægt að styðja bet­ur við einka­reknu fjöl­miðlana.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert