Hertar reglur taka gildi á miðnætti annað kvöld

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynna hertar …
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynna hertar aðgerðir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rík­is­stjórn­in hef­ur ákveðið að herða sótt­varnaaðgerðir fyr­ir jól til að sporna gegn út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar. Þetta kynnti Will­um Þór Þórs­son heil­brigðisráðherra að lokn­um rík­is­stjórn­ar­fundi. Tutt­ugu mega nú koma sam­an í stað 50 áður og 200 mega koma sam­an á stærri viðburðum í stað 500 gegn notk­un hraðprófa. 

Til­kynn­ing á vef Stjórn­ar­ráðsins

Regl­urn­ar taka gildi á miðnætti annað kvöld [innsk. blaðamanns: Will­um sagði upp­haf­lega að regl­urn­ar tækju gildi á miðnætti en hið rétta er að þær taka ekki gildi fyrr en á miðnætti annað kvöld og leiðrétt­ist það hér með] og gilda í þrjár vik­ur. Það voru skipt­ar skoðanir inn­an rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Að meg­in­efni til var farið eft­ir minn­is­blaði sótt­varna­lækn­is. 

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra sagði að stjórn­völd hefðu veru­leg­ar áhyggj­ur af stöðu mála. „Við erum að sjá mikla fjölg­un þeirra sem hafa smit­ast hér á Íslandi. Smit­in í kring­um 300 í dag.“

Hún sagði að stjórn­völd hefðu rýnt í stöðuna í ná­granna­lönd­un­um og að Ómíkron-af­brigðið væri að vaxa mjög hratt. „Þeim fjölg­ar mjög hratt sem smit­ast af því.“

Ekki skemmti­leg tíðindi að flytja þjóðinni

Hún bætti við að flest­ar rík­is­stjórn­ir ná­granna­land­anna væru að grípa til hertra ráðstaf­ana til að bregðast við ástand­inu. „Við vit­um líka út frá fyrstu gögn­um að veik­indi eru minni vegna þessa af­brigðis, en um leið er mik­il óvissa um ná­kvæma vörn bólu­efna gagn­vart þessu nýja af­brigði,“ sagði Katrín.

„En með þenn­an mikla fjölda þá sjá­um við okk­ur ekk­ert annað fært en að grípa til ráðstaf­ana, og það er auðvitað ekki skemmti­leg tíðindi að flytja þjóðinni í aðdrag­anda jóla. Það erum við mjög meðvituð um. En um leið er það okk­ar ábyrgð að tryggja það að vernda líf og heilsu lands­manna og tryggja að heil­brigðis­kerfið standi und­ir álagi,“ sagði for­sæt­is­ráðherra. 

Will­um Þór sagði að stjórn­völd hefðu leyft sér að vera bjart­sýn fyr­ir um hálf­um mánuði en ljóst væri að töl­urn­ar hefðu færst til verri veg­ar und­an­farið. 

„Það verður bara að segj­ast og viður­kenna óviss­una sem fylg­ir þessu nýja af­brigði. Töl­urn­ar segja okk­ur það að þessi far­ald­ur er kom­inn á ferðina og í minn­is­blaðinu kem­ur fram að það sé í veld­is­vexti. Þess vegna legg­ur sótt­varna­lækn­ir til að við beit­um harðari tak­mörk­un­um,“ sagði Will­um.

Sundstaðir og lík­ams­rækt fer úr 75% í 50% af há­marks­fjölda

„Al­mennt þá erum við að fara úr al­menn­um fjölda­tak­mörk­un­um úr 50 í 20. Og við erum að fara með stærri viðburði sem við get­um haldið með hraðgrein­ingar­próf­um úr 500 í 200. Sundstaðir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og skíðastaðir fara úr 75% af há­marki í 50%. Og svo erum við að fara úr eins metra regl­unni í tveggja metra reglu,“ sagði Will­um.

Hann sagði enn­frem­ur að stjórn­völd væru með þessu að herða aðeins á en þó þannig að lands­menn gætu t.d. klárað alla jóla­versl­un og annað sem þyrfti að ljúka fyr­ir jól. 

Hann bætti fram að sótt­varna­lækn­ir hefði lagt til að lengja aðeins skóla­frí. „En eft­ir gott sam­tal hér í rík­is­stjórn þá hef­ur það nú verið lín­an hingað til að halda skól­un­um opn­um og tóm­stund­um barna og ung­linga til að mynda sem mest. Þannig að við höf­um tekið þá ákvörðun að skól­arn­ir haldi sínu striki, en að skóla­málaráðherr­arn­ir taki sam­talið við skóla­stjórn­end­ur og starfs­menn skól­anna og meti stöðuna.“

Sem fyrr seg­ir þá taka regl­urn­ar gildi á miðnætti og þær gilda í þrjár vik­ur. 

Stjórn­völd fylgja temprun­ar­leið

Aðspurð hvort það væri ein­hug­ur inn­an rík­is­stjórn­ar­inn­ar um þessa aðgerðir sagði Katrín: „Það voru skipt­ar skoðanir en það ligg­ur al­gjör­lega fyr­ir að rík­is­stjórn­in hef­ur tekið þá af­stöðu að við fylgj­um ákveðinni leið sem við köll­um temprun­ar­leið, þ.e. tempra fjölg­un smita. Og þegar við erum kom­in í þá stöðu að við erum að sjá hér 300 smit á dag þá er al­veg aug­ljóst að við þurf­um hert­ari ráðstaf­an­ir til að tak­ast á við það að hemja þessa fjölg­un. Ástæðan er sú að við erum með vís­bend­ing­ar um hvert inn­lagn­ar­hlut­fallið er, þ.e. þeirra sem veikj­ast al­var­lega. Í þessu til­felli af Ómíkron. Við erum auðvitað líka með Delta-af­brigðið í gangi. Og það er al­veg ljóst að það þarf þá hert­ari ráðstaf­an­ir til að tempra þessa fjölg­un.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert