Arnþór fagnar nýju starfsleyfi Ísteka

Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka.
Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka.

Um­hverf­is­stofn­un end­ur­nýjaði á dög­un­um starfs­leyfi líf­tæknifyr­ir­tæk­is­ins Ísteka ehf. sem vinn­ur horm­óna­lyf fyr­ir svín úr blóði fylfullra mera. Arnþór Guðlaugs­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, seg­ir end­ur­nýj­un starfs­leyf­is­ins mikið fagnaðarefni.

Seg­ir það ekki standa til að auka blóðsöfn­un

Árétt­ar hann þó að starfs­leyfið taki aðeins til fræðilegr­ar há­marks­af­kasta­getu verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins en ekki áætl­ana þess um stækk­un.

„Það stend­ur ekki til að auka blóðsöfn­un að neinu ná­lægt þeim mörk­um sem starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar kveður á um.“

Vöxt­ur blóðsöfn­un­ar sein­ustu ára hafi að lang­mestu leyti verið inn­an þess meng­is stóðhryssna sem þegar séu haldn­ar í land­inu en fjöldi þeirra virðist hafa verið ansi stöðugur í yfir ára­tug, að sögn Arnþórs.

„Fjölg­un blóðhryssna hingað til hef­ur m.ö.o. orðið án telj­andi áhrif á stofn­stærð og þar með vist­spor. Í dag gefa flest­ar stóðhryss­ur lands­ins blóð auk þess að skila bónda fol­aldi og því tel ég að mik­il stækk­un um­fram það sem þegar er sé ólík­leg.“

Þá seg­ir hann at­vinnu­vega­nefnd hafa borist fjölda um­sagna vegna út­gáfu starfs­leyf­is­ins sem séu marg­ar hverj­ar at­hygl­is­vert inn­legg í umræðuna.

„Ég bendi sér­stak­lega á að sauðfjár­bænd­ur í Evr­ópu stóla á lyfið sem við fram­leiðum m.a. í rækt­un­ar­starfi til að vinna á móti al­var­leg­um sjúk­dóm­um í sauðfé sem við þekkj­um vel til eins og riðu og mæði eða visnu. Þá koma not þess í veg fyr­ir óþarfa slátrun gripa í fleiri bú­grein­um og stuðla að ým­is­kon­ar öðrum bót­um í bú­skap og dýra­vel­ferð.“

Hafa ekki rift fleiri samn­ing­um við bænd­ur

Í des­em­ber síðastliðnum til­kynnti Ísteka að fyr­ir­tækið hafi ákveðið rifta samn­ing­um við nokkra bænd­ur sem sýnd­ir voru fara illa með hross við blóðtöku í mynd­skeiði sviss­nesku dýra­vernd­ar­sam­tak­anna Ani­mal Welfare Foundati­on (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TBZ) sem fór í dreif­ingu í sama mánuði.

Fyr­ir­tækið greindi þó ekki frá því hve marga bænd­ur var um að ræða eða hvort það komi til greina að semja við þá á ný ef þeir bæta sig. Ekki hafa fleiri samn­ing­um verið rift síðan í des­em­ber, seg­ir Arnþór innt­ur eft­ir því.

„En á sein­ustu árum hef­ur nokkr­um samn­ing­um verið rift eins og áður hef­ur komið fram.“

Von­ar að dýra­vernd­ar­sam­tök­in af­hendi gögn

Þá seg­ist hann ekki vita til þess að meint dýr­aníð sem sést á mynd­skeiðinu um­rædda hafi verið kærð til lög­reglu ennþá. Mat­væla­stofn­un hafi þó hafið rann­sókn á mál­inu en síðar vísað rann­sókn­inni á lög­reglu, m.a vegna ónógra gagna.

Í til­kynn­ingu sem MAST sendi frá sér í byrj­un janú­ar seg­ir að stofn­un­in hafi óskað eft­ir frek­ari gögn­um frá of­an­greind­um dýra­vernd­ar­sam­tök­um sem gætu hjálpað við rann­sókn­ina en að sam­tök­in hafi ekki orðið við þeirri beiðni.

„Ég vona svo sann­ar­lega að AWF standi við orð sín um að af­henda rann­sókn­araðilum öll gögn máls­ins,“ seg­ir Arnþór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert