Nálgast bráðum 10 þúsund skjálfta

Skjálftahrinan hófst 8. september.
Skjálftahrinan hófst 8. september. mbl.is/Sigurður Bogi

Dregið hef­ur úr jarðskjálfta­virkn­inni við Gríms­ey þótt enn sé tölu­vert af skjálft­um að mæl­ast. Sam­kvæmt óyf­ir­förn­um niður­stöðum Veður­stofu Íslands hafa um 200 skjálft­ar riðið yfir frá miðnætti og um þúsund síðastliðinn sól­ar­hring.

Bjarki Kaldalóns Fri­is, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur hjá Veður­stof­unni, seg­ir enn mikla virkni á svæðinu þó svo að eng­ir stór­ir skjálft­ar hafi mælst í nótt. 

Mik­il vinna fyr­ir hönd­um

Frá því að hrin­an hófst þann 8. sept­em­ber hafa í heild­ina mælst tæp­lega 10 þúsund jarðskjálft­ar. Að sögn Bjarka hef­ur sér­fræðing­um Veður­stof­unn­ar ein­ung­is gef­ist tími til að fara yfir hluta mæl­ing­anna og eru þá aðeins stærstu skjálft­arn­ir tekn­ir fyr­ir.

Mik­il vinna sé því fyr­ir hönd­um enda enn tals­vert af skjálft­um úr hrin­unni á Reykja­nesskaga fyr­ir síðasta eld­gos sem ekki sé búið að yf­ir­fara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert