Óljósar lýsingar um lýsingar

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Helgi Valberg Jensson, Sigríður Björk Guðjónsdóttir og …
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Helgi Valberg Jensson, Sigríður Björk Guðjónsdóttir og Gunnar Hörður Garðarsson á fundinum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki ligg­ur end­an­lega fyr­ir hver tók ákvörðun um að beita ljós­um til að tor­velda störf frétta­manna og mynda­töku­manna við Kefla­vík­ur­flug­völl aðfar­arnótt 3. nóv­em­ber þegar hóp­ur hæl­is­leit­enda var flutt­ur úr landi. Rík­is­lög­reglu­stjóri seg­ir að það hafi ekki verið gert að kröfu lög­regl­unn­ar, en hann vill bæta sam­skipti lög­reglu og blaðamanna. 

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hef­ur farið yfir öll skráð sam­skipti lög­regl­unn­ar, bæði lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu og lög­regl­unn­ar á Suður­nesj­um í tengsl­um við aðgerðirn­ar og ekk­ert hef­ur komið fram sem sýn­ir fram á að slík skip­un hafi verið gef­in af hálfu lög­regl­unn­ar. Þá var tekið fram að eng­in til­raun hefði sömu­leiðis verið gerð til að stöðva frétta­flutn­ing í Hafnar­f­irði þar sem frétta­menn voru mætt­ir við upp­haf aðgerðanna, enda hefði lög­regl­an eng­ar ástæður til þess. 

Sigríður Björk Guðjónsdóttir vill bæta samskipti lögreglunnar og blaðamanna.
Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir vill bæta sam­skipti lög­regl­unn­ar og blaðamanna. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Þetta kom fram á fundi sem Blaðamanna­fé­lag Íslands hélt með embætti rík­is­lög­reglu­stjóra í dag, en Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir rík­is­lög­reglu­stjóri sat þar fyr­ir svör­um ásamt þeim Gunn­ari Herði Garðars­syni, sam­skipta­stjóra embætt­is­ins, og Helga Val­berg Jens­syni, yf­ir­lög­fræðingi embætt­is­ins, en Helgi kom m.a. að skipu­lagn­ingu brott­flutn­ings­ins og fylgdi hópn­um með flugi til Grikk­lands. Fram kom fram að aðgerðirn­ar hefðu verið mjög krefj­andi fyr­ir lög­regl­una og um­fangs­mikl­ar, eða ein sú stærsta sem lög­regl­an hef­ur þurft að sinna eft­ir Covid-far­ald­ur­inn.

Flutn­ing­ur og sprengju­hót­un

Greint var frá því að þegar hóp­ur­inn kom á flug­völl­inn þá hefði aug­ljós­lega orðið mis­brest­ur í sam­skipt­um lög­reglu og Isa­via sem fyrr seg­ir, en tekið var fram að á sama tíma hefði borist sprengju­hót­un sem lög­regl­an og starfs­fólk Isa­via urðu að meta og bregðast við. Sú hót­un reynd­ist þó ekki raun­veru­leg en hafði aft­ur á móti áhrif á starf­sem­ina á vell­in­um á meðan að sögn lög­reglu.

Þá kom fram, að sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra hefði sett sig sam­dæg­urs í sam­band við for­svars­menn Isa­via og spurt hvort og þá hvaða beiðni hefði komið frá lög­regl­unni um að beina ljós­um að fjöl­miðlum. Það var þó ekki fyrr en í gær sem það fékkst form­leg­ur fund­ur með Isa­via í gær til að fara yfir málið. Ekki hef­ur þó feng­ist staðfest hvort starfs­fólk Isa­via hafi mögu­lega gefið fyr­ir­mæli um að nota ljós­búnaðinn eður ei. En að sama skapi kom fram að það væri ekki hægt að úti­loka að lög­regla á vett­vangi hefði gefið slík fyr­ir­mæli þrátt fyr­ir að að ekk­ert bendi til þess í skráðum sam­skipt­um. Lög­regl­an og Isa­via eru þó sam­mála því að þetta hefði ekki átt að ger­ast. 

Tilefni fundarins, sem var vel sóttur, var nýlegar aðgerðir þar …
Til­efni fund­ar­ins, sem var vel sótt­ur, var ný­leg­ar aðgerðir þar sem blaðamenn voru hindraðir við störf. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Fund­ur­inn, sem var vel sótt­ur, var ein­ung­is ætlaður starf­andi blaðamönn­um sem eru fé­lag­ar í BÍ. Sig­ríður Dögg Auðuns­dótt­ir, formaður BÍ, var fund­ar­stjóri og auk þess að ræða um at­b­urðina 3. nóv­em­ber var einnig fjallað um al­menn sam­skipti lög­reglu við fjöl­miðla en tals­verð gagn­rýni kom fram hjá blaðamönn­um hve erfitt það væri að nálg­ast upp­lýs­ing­ar og svör hjá lög­reglu. Fund­ar­menn voru sam­mála um mik­il­vægi þess að bæta sam­skipt­in í tengsl­um við mál­efni og störf lög­regl­unn­ar. 

Unnið að sam­skipta­regl­um

Á fund­in­um kom fram einnig fram, að embætti rík­is­lög­reglu­stjóra vinni nú að gerð sam­skipta­reglna fyr­ir öll lög­reglu­embætti lands­ins, sem eru níu tals­ins með jafn marga lög­reglu­stjóra. Þetta er unnið í sam­ráði við embætt­in og er enn í vinnslu. Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur óskað eft­ir aðkomu BÍ að vinn­unni áður en regl­urn­ar taka form­legt gildi, en mark­miðið er að sam­ræma verklag lög­reglu­embætt­anna við upp­lýs­inga­gjöf og sam­skipti við fjöl­miðla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert