Niðri við brimið þrátt fyrir nýtt viðvörunarkerfi

Gult ljós blikkaði á nýju skilti í Reynisfjöru í morgun.
Gult ljós blikkaði á nýju skilti í Reynisfjöru í morgun. mbl.is/Jónas Erlendsson

Búið er að setja upp nýtt viðvör­un­ar­kerfi í Reyn­is­fjöru og í morg­un blikkuðu þar gul viðvör­un­ar­ljós, sem virt­ust þó ekki hafa mik­inn fæl­ing­ar­mátt á ferðamenn.

Á meðfylgj­andi mynd má sjá fjölda ferðamanna spóka sig í fjör­unni og nokkr­ir eru þar al­veg niðri við brimið.

Sam­kvæmt skilt­inu þýða gul viðvör­un­ar­ljós að miðlungs mik­il hætta sé fyr­ir hendi. Og þá eigi fólk ekki að ganga út á gula svæðið.

Þá kem­ur skýrt fram að á svæðinu séu hættu­leg­ar ólags­öld­ur og að fólk skuli halda sig í ör­uggri fjar­lægð frá brim­inu.

Upp­setn­ing tafðist

Nokk­ur bana­slys hafa orðið í Reyn­is­fjöru á síðastliðnum árum þegar öld­ur hafa hrifið fólk út á haf. Síðast lést þar er­lend­ur ferðamaður í júní og í kjöl­farið skapaðist tölu­verð um ræða um aðgengi ferðamanna að Reyn­is­fjöru og hvernig væri hægt að koma í veg fyr­ir bana­slys.

Enn er unnið að frá­gangi á viðvör­un­ar­kerf­inu og er bú­ist því að því ljúki á næstu dög­um. 

Not­ast er við öldu­sporakerfi Vega­gerðar­inn­ar á grunn­sævi til að stýra viðvör­un­ar­ljós­un­um.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert