Alvarlegt að fólk haldi ekki trúnað

Óli Björn Kárason.
Óli Björn Kárason. mbl.is/Hallur Már

Óli Björn Kára­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins sem er jafn­framt varamaður í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is, seg­ir al­var­legt að trúnaðargögn­um úr skýrslu rík­is­end­ur­skoðanda um Íslands­banka­söl­una hafi verið lekið í fjöl­miðla degi áður en fjalla átti um efni henn­ar á fundi nefnd­ar­inn­ar. Hann seg­ir jafn­framt að taka verði al­var­lega þær ábend­ing­ar sem rík­is­end­ur­skoðandi komi fram með í sjálfri skýrsl­unni. 

Guðmund­ur Björg­vin Helga­son rík­is­end­ur­skoðandi sagði í sam­tali við mbl.is í gær, að það hefði verið gríðarlega óheppi­legt að trúnaður skyldi ekki hafa verið hald­inn um vinnu af þessu tagi og taldi hann nokkuð ör­uggt að henni hefði verið lekið af nefnd­ar­manni í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is. Rík­is­end­ur­skoðun hefði unnið að skýrsl­unni í marga mánuði án þess að hún hefði endað hjá fjöl­miðlum.

„Þetta er eins al­var­legt og hægt er að hugsa sér. Það að það sé ekki hægt að treysta því að þing­menn, eða þing­nefnd, haldi trúnað er mjög al­var­legt og hef­ur áhrif á sam­skipti rík­is­end­ur­skoðanda og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar; al­veg ör­ugg­lega. En það hef­ur líka áhrif á sam­skipti annarra nefnda og annarra þing­manna við rík­is­end­ur­skoðanda, eða aðra aðila sem þurfa að eiga trúnaðarsam­skipti við þing­menn og þing­nefnd­ir,“ seg­ir Óli Björn.

Mun aldrei stíga fram

Spurður hvort rann­sókn eigi að fara fram á þess­um leka, þá tel­ur hann ljóst að sú rann­sókn muni aldrei leiða í ljós hver stóð að lek­an­um. „Viðkom­andi mun aldrei stíga fram. Og það er auðvitað vont fyr­ir þá sem sitja í nefnd­inni og héldu trúnað af því all­ir eru und­ir grun.“

Hvað varðar skýrslu rík­is­end­ur­skoðanda, þá seg­ir Óli Björn að hún sé á marg­an hátt góð og gott inn­legg í þá vinnu sem sé í gangi við að breyta lög­um um fram­kvæmd á sölu rík­is­eigna. Menn verði jafn­framt að taka al­var­lega þær ábend­ing­ar sem rík­is­end­ur­skoðandi komi fram með í skýrsl­unni. 

„Fram­kvæmd­in hef­ur ekki gengið eins eft­ir eins og við vonuðumst eft­ir. Hann [rík­is­end­ur­skoðandi] gagn­rýn­ir upp­lýs­inga­gjöf­ina sem menn verða að taka til­lit til,“ seg­ir Óli Björn.

Þá tek­ur hann fram, hvað varðar end­an­legt verð, að slík­ar umræður verði aldrei annað en vanga­velt­ur. „Það er eng­inn í heim­in­um þess um­kom­inn að segja að verðið hefði getað verið hærra ef eitt­hvað hefði verið gert með öðrum hætti.“

Gagrýn­in bein­ist að tvennu

Spurður um hvar ábyrgðin ligg­ur, þar sem stjórn­ar­andstaðan gagn­rýn­ir Bjarna Bene­dikts­son fjár­málaráðherra og rík­is­stjórn­in bend­ir á Banka­sýslu rík­is­ins, þá seg­ir Óli Björn að það hafi ekk­ert komið fram í skýrslu rík­is­end­ur­skoðanda um lög­brot.

„Það er ekk­ert slíkt í skýrsl­unni. Ekki neitt. Gagn­rýn­in bein­ist fyrst og síðast að tvennu, eins og ég er að sjá þetta. Ann­ars veg­ar að upp­lýs­inga­gjöf­inni fyr­ir­fram, og þar geta menn auðvitað alltaf gert bet­ur, það er alltaf hægt að segja það. Og hins veg­ar að fram­kvæmd útboðsins. Þá bein­ast aug­un að Banka­sýsl­unni og hvernig hún hélt utan um [fram­kvæmd­ina], og síðan geta menn al­veg rætt það sér­stak­lega.“

Óli Björn bend­ir einnig á, að árið 2015 hafi Bjarni lagt fram frum­varp á Alþingi um að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins þar sem hann taldi að þetta fyr­ir­komu­lag væri óheppi­legt. „Hann var gerður aft­ur­reka af meiri­hluta þings­ins, m.a. því fólki sem núna gagn­rýn­ir hvað mest.“

Óli Björn tel­ur að rann­sókn Seðlabanka Íslands, sem stend­ur enn yfir, muni einnig skipta máli í þessu sam­hengi. Þar sé verið að skoða hátt­semi eft­ir­lits­skyldra aðila, sem séu söluaðilarn­ir í þessu til­felli, hvort þar hafi verið ein­hver pott­ur brot­inn,“ seg­ir Óli Björn sem hvet­ur fólk til að bíða með dóma og stór­yrði þar til sú niðurstaða liggi fyr­ir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert