„Ætlum ekki að horfa upp á þennan hrylling“

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að senda út …
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að senda út skilaboð til íranskra kvenna. mbl.is/Hákon Pálsson

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra seg­ist vona og vita að Sam­einuðu þjóðirn­ar sendi mik­il­væg skila­boð til kvenna og í Íran, og þeim sem hætta lífi sínu í Íran, með því að setja á fót sjálf­stæða rann­sókn­ar­nefnd. Álykt­un Íslands og Þýska­lands þess efn­is var samþykkt í dag.

Nefnd­in mun safna gögn­um um bylt­ing­una sem á sér nú stað í Íran og hef­ur staðið yfir síðan í sept­em­ber. Stjórn­völd þar í landi hafa virt mann­rétt­indi að vett­ugi og ráðist að mót­mæl­end­um en á þriðja hundrað hafa lát­ist í átök­un­um.

„Líður nokkuð vel með dag­inn með það í huga“

„Þarna fær þetta fólk [mót­mæl­end­ur] sterk skila­boð frá alþjóðasam­fé­lag­inu um að við stönd­um með þeim og ætl­um ekki að horfa upp á þenn­an hryll­ing held­ur grípa til aðgerða. Mér líður nokkuð vel eft­ir dag­inn með það í huga.“

Lyk­il­atriði sé að gagn­anna sé aflað með rétt­um hætti og að hægt sé að nýta þau til þess að draga menn til ábyrgðar. Það verði einkum utan lög­sögu Írans, enda sé ekki hægt að gera sér vænt­ing­ar um að ír­anskt rétt­ar­kerfi taki slíkt að sér.

„Skila­boðin sem við send­um út, fyrst og síðast til fólks­ins í Íran, skipta mjög miklu máli. Viðbrögðin hafa verið eft­ir því líka.“ 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert