Réttarhöld í Samherjamáli hefjast í haust

Réttarhöldin í Namibíu hefjast í haust.
Réttarhöldin í Namibíu hefjast í haust. mbl.is/Sigurður Bogi

Rétt­ar­höld yfir tíu mönn­um sem ákærðir eru í Sam­herja­mál­inu í Namib­íu hefjast þann 2. októ­ber og er gert ráð fyr­ir því að þau standi yfir fram í júní árið 2024.

Um er að ræða namib­íska stjórn­mála­menn, frænd­fólk þeirra, stjórn­ar­formann Fis­hcor og fyrr­um fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins Nam­gom­ar, fyr­ir að hafa þegið mút­ur frá fé­lög­um tengd­um Sam­herja, í skipt­um fyr­ir aðgang að fiski­miðum Namib­íu.

Mættu fyr­ir dóm í morg­un

Íslend­ing­ar, sem namib­ísk stjórn­völd hugðust ákæra í mál­inu, voru ekki ákærðir þar sem ekki er hægt að ákæra menn sem verða fjar­ver­andi þar í landi.

Mættu sak­born­ing­arn­ir fyr­ir dóm í Wind­hoek, höfuðborg Namib­íu, í morg­un þar sem dag­setn­ing rétt­ar­hald­anna var til­kynnt. Voru það þeir Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­málaráðherra, Bern­h­ar­dt Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra, James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður Fis­hcor, Tam­son „Fitty“ Hatuikulipi, tengda­son­ur Esau og frændi áður­nefnds James, og Ricar­do Gusta­vo, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Nam­gom­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert