Aðgerðirnar í Brasilíu lengi í undirbúningi

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra.
Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra. mbl.is//Hari

Karl Stein­ar Vals­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, seg­ist ekki geta staðfest það um hvaða Íslend­ing sé að ræða sem hand­tek­inn var fyrr í dag í Bras­il­íu. Þá hafi aðgerðirn­ar verið lengi í und­ir­bún­ingi hjá bras­il­ísk­um yf­ir­völd­um sem sögðu Íslend­ing­inn vera leiðtoga inn­an glæpa­sam­taka sem aðgerð dags­ins sner­ist að.

Sam­kvæmt heim­ild­um RÚV var þarna á ferðinni Sverr­ir Þór Gunn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Sveddi tönn, sem hef­ur áður verið dæmd­ur í Bras­il­íu fyr­ir fíkni­efna­smygl.

„Við höf­um á und­an­förn­um árum verið mark­visst að styrkja sam­skipti okk­ar við lög­reglu­yf­ir­völd í Suður-Am­er­íku og einkum Bras­il­íu vegna þess að það hef­ur verið tals­vert um teng­ing­ar á skipu­lagðri brot­a­starf­semi þangað. Meðal ann­ars höf­um við nýtt okk­ur starf­semi Europol í því skyni þar sem að Bras­il­ía er með tengslaskrif­stofu þar eins og við. Það hef­ur meðal ann­ars hef­ur leitt til þess að bras­il­ísk yf­ir­völd hafa rann­sakað brota­hópa sem hafa haft teng­ingu til Íslands og verið með starf­semi bæði í Suður-Am­er­íku og Evr­ópu.,“ seg­ir Karl Stein­ar í sam­tali við mbl.is.

Ljós­mynd/​Bras­il­íska al­rík­is­lög­regl­an

Hann seg­ir aðgerð dags­ins, sem bar heitið „Match po­int“ hafa verið lengi í und­ir­bún­ingi hjá bras­il­ísku lög­regl­unni.

„Við höf­um verið í ákveðinni sam­vinnu með þeim því tengt. Sem liður í því þá get ég staðfest að það eru starfs­menn frá ís­lensk­um yf­ir­völd­um í Bras­il­íu og verða eitt­hvað eins og þurfa þykir.“

Sam­vinn­an milli land­anna hafi verið tölu­vert lengi í gangi.

„Þetta er liður í nú­tíma­lög­reglu­sam­vinnu þar sem lönd eru að vinna sam­an. Við erum með ákveðnar upp­lýs­ing­ar og þau með annað. Það er verið að vinna ákveðna grein­ing­ar­vinnu og svo tekn­ar ákv­arðanir tengt því sem leiða þá til þess­ara aðgerða sem eru þarna núna á for­ræði þeirra,“ seg­ir Karl Stein­ar um sam­starfið.

Greint var frá því fyrr í dag að aðgerð bras­il­ísku al­rík­is­lög­regl­unn­ar næði til tíu borga þar í landi. Lög­regl­an lagði hald á 65 kíló af kókaíni, 225 kíló af kanna­bis­efn­um og 57 fast­eign­ir auk öku­tækja og skipa ásamt því að loka fyr­ir banka­reikn­inga 43 ein­stak­linga.

Lög­regl­an tel­ur verðmæti eign­anna sem gerðar voru upp­tæk­ar geta numið um 150 millj­ón­um bras­il­ísks ríal eða um 4,2 millj­örðum ís­lenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert