Starf­semi glæpa­sam­takanna ó­venju­leg

Verðmæti hlutana sem lögregla lagði hald á er gífurlegt.
Verðmæti hlutana sem lögregla lagði hald á er gífurlegt. Ljósmynd/Brasilíska alríkislögreglan

Bras­il­íska al­rík­is­lög­regl­an seg­ist hafa kom­ist á snoðir um starf­semi glæpa­sam­taka sem Íslend­ing­ur­inn Sverr­ir Þór Gunn­ars­son er sagður stjórna þegar staðsetn­ing flug­skýl­is sem tengd­ist glæp­a­starf­sem­inni var upp­götvuð.

Þessu grein­ir SBT News frá.

Þá sé rekst­ur glæpa­sam­tak­anna tal­inn nokkuð sér­stak­ur vegna þess að þau selji marg­ar teg­und­ir fíkni­efna í stór­um og smá­um skömmt­um auk þess sem þau sjái einnig um inn- og út­flutn­ing efn­anna. Þá nýti sam­tök­in báta í flutn­ingi á kanna­bis­efn­um en leiðirn­ar sem hafi verið notaðar til flutn­ings hafi meðal ann­ars farið með strönd­um Afr­íku.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hef­ur ekki viljað staðfesta að Íslend­ing­ur­inn sem um sé að ræða sé Sverr­ir Þór en bras­il­ísk­ir miðlar birtu nafn hans í tengsl­um við málið stuttu eft­ir hand­töku. Tug­ir hand­töku­skip­ana voru gefn­ir út í tengsl­um við aðgerð gær­dags­ins sem ber heitið Match Po­int.“

Stór aðgerð

Lög­reglu­embætti í Bras­il­íu unnu að aðgerðinni  í sam­vinnu við lög­regl­una á Ítal­íu og Íslandi í gegn­um Europol. Þá voru ís­lensk­ir lög­reglu­menn á staðnum þegar aðgerðin var fram­kvæmd.

Um 250 lög­reglu­menn tóku þátt í verk­efn­inu og lagði lög­regla hald á 65 kíló af kókaíni, 225 kíló af kanna­bis­efn­um og 57 fast­eign­ir auk öku­tækja og skipa ásamt því að loka fyr­ir banka­reikn­inga 43 ein­stak­linga.

Lög­regl­an tel­ur verðmæti eign­anna sem gerðar voru upp­tæk­ar geta numið um 150 millj­óna bras­il­ísks ríal eða um 4,2 millj­örðum ís­lenskra króna.

Karl Stefán Vals­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra sagði í sam­tali við mbl.is í gær að aðgerðin hefði verið mánuði í und­ir­bún­ingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert